Choose your future. Choose life.
Ég kom af fjöllum þegar mamma fór að undrast yfir svartagallsrausinu í mér á þessu endemis bloggi. Hún kannaðist ekki við þessa tilvitnun úr kvikmyndinni Trainspotting sem hangir uppi á mörgum heimilum jafnaldra minna og mig grunar að sé hluti af sjálfsmynd og hversdagslífi enn fleiri. Mér fannst hún vera með óþarfar og ástæðulausar áhyggjur en hef samt verið að hugsa um þetta síðan. Sem gefur að skilja hef ég takmarkaða þekkingu á því hvernig þjóðfélagið var fyrir tuttugu árum og fer mér því hægt í staðhæfingar um að meira sé af valkostum fyrir ungt fólk nú en þá, að firringin sé meiri í nútímasamfélagi, að ungt fólk sé meðvitaðra um firringuna, að ungt fólk sé taki ríkari þátt í neyslukapphlaupinu nú til dags, að kapphlaupið sé orðið hraðara... Ég veit ekki hvort eitthvað er til í þessum getgátum. Ég veit ekki hvað það var sem blés Irvine Welsh þessar hugsanir í brjóst.
Ég veit bara að firring neyslukapphlaupsins er partur af mínum raunveruleika og margra annarra. Mér finnst það ekkert tiltökumál, ég tek þátt í þessu meðvitað og ómeðvitað, þetta er löngu orðið mér hversdagslegt, viðteknar venjur - svona er það bara. En ég veit af því og stundum þyrmir yfir mig að ég geti ekki staðið á móti því. Og ég veit að það er eins með marga jafnaldra mína. Þegar allt kemur til alls er það kannski ekki það að ég óttist að verða fullorðin eins og ég hef þó oft sagt, ekki það sem slíkt. Ef ég íhuga þessa martröð mína og skilgreini hana betur þá óttast ég það að tapa af mér hausnum og allri heilli hugsun og vakna einn morguninn umkringd hlutum sem ég hef ekki þörf fyrir og ekki ánægju af en afborganir til margra alda á herðunum. Ég er smeyk við að sá tími í mínu lífi komi þegar ég hlakka meira til að eignast eitthvað og festast í báða skó heldur en að fara á nýjan stað í sjömílnaskóm æskunnar, læra eitthvað nýtt og þroskast og verða betri fyrir vikið. Og viti menn, þarna er líka komin ljóslifandi réttlæting mín og ástæða fyrir því að vera og verða flakkari.
Kaldhæðnin í öllu saman er að aðalsöguhetja Trainspotting, skoski heróínfíkillinn Renton, endar á því að kjósa neyslukapphlaupið, kjósa eðlilega lífið. Og hann hlakkar til að henda sér út í það.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home