mánudagur, mars 31, 2003

- Ein ritgerðin í viðbót búin, nóg eftir. Þetta var Lýðræði: krafan um vald meiri hlutans með vísan í Þjóðníðing, leikrit Ibsens... held mér hafi tekist að snúa mig ágætlega út úr því. Gluggaði í leiðinni í John Stuart Mill, John Locke og Ríkið hans Platóns, mjög góður undirbúningur fyrir próf, sem er mjög gott.
- Næst á dagskránni er verkefni f. Opinbera stjórnsýslu: Skiptir máli hverjir embættismennirnir eru? Væri stjórnsýslan betri fyrir vikið ef hún væri þverskurður af þjóðfélaginu, þ.e. x% konur, x% innflytjendur, x% af fátæku foreldri etc. Þetta er fyrir föstudaginn.
- Í næstu viku er 8-10 bls ritgerð í frönskum bókmenntum 16., 17. og 18. aldar - mitt lengsta ritverk á frönsku hingað til. Þemað er Guðir og skrímsli í leikritinu Fedru eftir Racine. Það verður örugglega skemmtilegt - eins og þetta er sosum allt saman, annars væri maður ekki að þessu.
Þá eru bara eftir tvær ritgerðir sem ég þarf að mixa í bland við próflestur: skilist á prófdag.
- Annars vegar Heimspekileg forspjallsvísindi - Fílan. Þema óákveðið, má velja um fjögur.
- Hins vegar Opinber stjórnsýsla: Sýslumenn í fortíð og nútíð.

Annars er ég mjög stolt af því hversu miklu ég hef náð að skila það sem af er þessari önn og hef bara misst eina nótt úr vegna ritgerðasmíða og það var ekki þessi. Yfirleitt hefur normið verið ein til tvær svefnlausar nætur á hverja ritgerð. En ekki núna - sem er mjög gott. Batnandi manni er best að lifa, vonandi held ég uppteknum hætti. Engin ástæða til að hafa áhyggjur af mér, ég hef það fínt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home