miðvikudagur, mars 26, 2003

"Hjörturinn varð hestinum ofjarl og flæmdi hann jafnan úr hinum sameiginlega bithaga, uns hestinum fór að leiðast þófið, leitaði á náðir mannsins og lét hann beisla sig. En er hann hafði þannig með örþrifaráðum sigrast á fjanda sínum og skilist við hann, kom hesturinn ekki manninum af baki né beislinu fram af sér. Sá sem því af ótta við örbirgð fórnar frelsinu, sem er meira virði en allt veraldar gull, hann situr fyrir ágirni sína uppi með sinn herra og verður þræll að eilífu, þar eð hann kann ekki að bjargast við lítið."
Úr bréfum Hórasar

To: Rekstrarstjóri Utanríkisráðuneytisins
Subject: Sumarvinna

Sæll Pétur
Ég þakka sýnda velvild að þú skulir hafa haldið vinnunni frá fyrir mig en ég hef tekið þá ákvörðun að gefa skít í hana. Ég nenni ekki öðru sumri hangandi inni á skilrúmsskrifstofu við repetetíva handavinnu sem ég hef takmarkaðan áhuga á þegar mig dauðlangar að vera annars staðar, við aðra iðju, nefnilega ferðalög um fjöll og firnindi. Ég á mikið eftir að sakna alls þess góða fólks sem ég kynntist síðasta sumar og bið fyrir kæra kveðju til þess.
Ég hef nefnilega ákveðið að láta kylfu ráða kasti, taka vinnu við ferðaþjónustu í sumar núna á þessum síðustu og verstu tímum þar sem áframhaldandi stríð eða eitt hryðjuverk fyrirgerir mínum framtíðarvonum. Það væri með blóðbragð í munni sem ég þegði vinnu í apparati sem styður stríðið sem pöpullinn mótmælir, stríðið sem hugsanlega mun gera mig atvinnulausa. Ég hef litla trú á mótmælastöðum og málningarslettum. Mín mótmæli felast í mínu atkvæði í komandi kosningum.
Lifðu heill,
Herdís

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home