Helgin byrjaði vel, gaman að því...
Hlakka mest til að sjá myndirnar sem Óli tók á vélina mína: HEILA FILMU. Óli, þú veist það að þú dílítar ekki myndum í filmuvél... takk samt fyrir rösklega framgöngu, vel að verki staðið. Þetta er allt í lagi, átti filmur heima - verð vel byrg á árshátíðinni á laugardaginn.
Enn ein brettaáætlunin fór út um þúfur á miðvikudaginn vegna veðurs. Af hverju er alltaf leiðindaveður þegar maður er búinn að plana að fara? Vonandi verður allavega ágætisveður síðustu helgina í mars - annars verður bara gott partí á Akureyri.
Ég fór á kóræfingu á þriðjudaginn, eins konar reunion gamalla félaga kórs íslenska safnaðarins í London. Þarna var enginn af mínum gömlu félögum, ég þekkti þarna engan nema prestshjónin yndislegu, Jón og Margréti. Flest þessa fólks þekktist ekki innbyrðis, það hafði verið í London á ólíkum tímum. En það skipti eiginlega ekki máli. Þarna voru allir vinir, það var eins og allir þekktust. Allir voru brosandi út að eyrum. Það eina sem tengdi þetta fólk voru góðar minningar um skemmtilegar stundir, ekki sömu stundirnar en svipaðar og keimlíkar - svipaður reynsluheimur. Sú samkennd dugði alveg. Svo er messa á sunnudaginn í Dómkirkjunni, þetta verður skemmtilegt. Ég verð lítt sofin, væntanlega, alveg eins og var nú oft í messum úti. Það tilheyrir.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home