Í morgun varð ég vitni að nokkru sem fáir hafa séð eða munu sjá. Miklar umræður voru um það í stjórnmálaheimspeki hvort það samræmdist frelsisreglu Johns Stuarts Mills (Bannað að takmarka frelsi náungans nema sé í sjálfsvörn) að banna hitt og þetta, m.a. klám. Mill myndi segja að hverjum manni væri frjáls þátttaka í klámi á beinan eða óbeinan hátt ef honum svo sýndist. Hannes tók það fram að ekki væri til umræðu ýmsar pervertískar myndir kláms, s.s. barnaklám eða dýra, - umræðan snerist um frjálst og fullveðja fólk sem tæki þátt meðvitað og af eigin vilja.
En - sagði einhver - en ef dýrin skaðast ekkert af þessu, er þá nokkuð að því?
Hannes: Nei, það er samt ekki í lagi, af því dýrin geta ekki gefið meðvitað samþykki sitt fyrir þátttöku.
Já en bíddu - hélt hinn áfram - ef maður má eiga kú, maður má mjólka hana, maður má drepa hana og éta hana; af hverju má maður þá ekki hafa mök við hana?
Og Hannes Hólmsteinn Gissurarson stóð uppi við töflu og sagði ekki orð. Hannes Hólmsteinn Gissurarson var orðlaus - kjaftstopp!
Það, kæru vinir, er sjaldgæft.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home