Þennan vetur er ég að taka út allan slysa- og slaskvóta sem ég ekki tók út sem barn. Mér var nær að sitja heima og lesa í æsku minni. Það nýjasta er "kröftug tognun á stóru tá hægri fótar", eins og það hljómar í sjúkraskýrslunni.
Hvað gerðist? Ég sparkaði í ísskáp...
Ég hef fengið nokkuð góðan bata og nú skarta ég æði fínum marblettum á innanverðri og neðanverðri stórutánni - sem mér finnst mjög merkilegt, það er augljóst að það er ekki hlaupið að því að setja marbletti á þessa staði, þetta verður ekki toppað fyrr en ég hitti einhvern sem er marinn á innanverðri litlutá!
En þetta stöðvar mig ekki í áformum helgarinnar, ég ætla á jökul! Nú er það námskeiðið Fjallamennska 2 þar sem farið verður í klifur, tryggingar og sitthvað fleira. Ég er nu ekki fullkomlega græjuð fyrir svona. Ekki vill þó svo til að einhver getur lánað mér eitthvað af eftirfarandi:
- mannbroddar
- ísaxir
- kilfurbelti og tilbehör
- snjóflóðaýlir
þó verð ég nú reyndar að segja að það kæmi mér mikið á óvart ef einhver sem ég þekki lumaði á þess háttar dótaríi.
Ég er nú reyndar algjörlega óvænt mun betur útbúin en ég bjóst við, þökk sé útbúnaðarbasar hjá FBSR í gærkvöldi. Nú á ég Goretex utanyfirbuxur, flíspeysu, 51,6% hlut í sumar-vetur-vor-og-haust-tjaldi og forláta gönguskíði sem mér voru gefin. Gönguskíðin verða reyndar líklega að bíða betri tíma, þeirra tími mun áreiðanlega koma; af því hef ég engar áhyggjur. En ég mun sofa vært og rótt, sem og Villý og þeir sem fá að gista himnasali vora.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home