fimmtudagur, janúar 23, 2003

Ég er ekki mikið fyrir hetjudýrkun á frægu fólki og reyni meðvitað að taka ekki þátt í því að finnast frægt fólk merkilegra en annað. Þetta á þó sérstaklega við wanna-be's, would-be's og has-been's sem reglulega birtast á síðum sorpblaða eins og Séð og heyrt.
Látum vera að halda upp á fólk sem hægt er að álíta hetjur og framúrskörunga að einhverju leyti, fólk sem hefur eitthvað til síns ágætis.
En af hverju kemur út blað fullt af myndum af fólki sem enginn veit hvað hefur gert til að ávinna sér frægð, annað hvort út af því að viðkomandi hefur aldrei gert neitt merkilegt eða af því að það er svo langt síðan að "afrek" viðkomandi er fallið í gleymskunnar dá? Og af hverju kaupir fólk svoleiðis blað?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home