Talandi um veður, þetta var í Mogganum. Þetta virkar greinilega. Spurning um að prófa. Ætli það sé sama hvernig sálmar eru sungnir?
Erlent | AP | 15.1.2003 | 10:34
Þúsundir Nepalbúa ákölluðu sólguðinn Surya í morgun en mjög kalt hefur verið í landinu að undanförnu. Bænunum virtist vera svarað því sólin fór að skína í fyrsta skipti í margar vikur.
Bæði Hindúar og Búddatrúarmenn í Nepal tóku þátt í athöfninni sem á sér djúpar sögulegar rætur. Þeir stóðu á húsaþökum eða í húsagörðum og sungu sálma, brenndu reykelsi og buðu sólguðnum blóm, ávexti og hrísgrjón.
Skömmu síðar sendi sólin geisla sína til Teraihéraðs við landamæri Indlands. Þar hafa að minnsta kosti 63 látið lífið í kuldanum en þykk þoka og ský hafa hulið sólina frá því snemma í desember.
Athöfnin í dag markar hefðbundin vetrarlok samkvæmt almanaki Nepalbúa.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home