Júhú... fyrsta prófið búið, loksins. Fyrsta af fjórum:
11.des. Inngangur að stjórnmálafræði: íslenska stjórnkerfið
17.des. Ritgerðasmíð (franska)
19.des. Almenn félagsfræði
21.des. Viðskiptafranska
Inngangurinn er aðalsían inn í stjórnmálafræði og félagsfræði: fullt af lesefni um alls kyns. Það er soldið gott fyrir sálina að vera búin með hann og að það gekk bara vel... allavega só far só gúdd.
Vonum bara að Gunnar Helgi falli fyrir bullinu í mér.
Tja, vonum öllu heldur - af því að Gunnar Helgi er klár maður og litlar líkur á því að hann falli fyrir bulli (frekar að hann felli fyrir bull) - vonum að ég hafi actually komið hugsun minni skýrt á blað og að hugsun mín hafi verið skýr og rétt, það er víst fyrir öllu. (Vonum líka að það sé nú örugglega ufsilon í skýr...)
Ég held að ég hafi plumað mig ágætlega en ég er hrædd um að ég sé ekki - ekki frekar en nokkur prófþreytandi nokkurn tímann - dómbær á mitt brautargengi.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home