mánudagur, desember 16, 2002

Ég ætlaði að linka á frétt sem birtist í Mogganum um helgina um garðálfastuld á Selfossi en fann hana ekki á mbl.is mér til mikillar mæðu. Hins vegar fann ég þessa sem mér fannst eiginlega miklu fyndnari. Einhvern veginn hefur þetta alveg farið fram hjá mér í sumar.

Ég var að taka til í gær heima á Eyrarbakka. Þ.e. ég ætlaði að taka til en gleymdi mér svo í nostalgíu og reminissi þegar ég sá allt gamla draslið mitt. Ég sat löngum stundum við að skoða gamlar dagbækur, maaaaan... var ég einu sinni svona? Ég trúi því ekki.
Það sem vakti mesta lukku var samt úrklippa úr gamalli Dagskrá: dagbók lögreglunnar 9.-15. júní 1998. Ég ljósritaði þetta og kom með í bæinn til að sýna honum Ella eftirlýsta, það ætti einhver að kannast við þetta.

Ég hef aldrei hugsað út í það hvernig hinum garðálfinum okkar, honum Dúdda, hlýtur að hafa liðið. Enginn lýsti eftir honum, öllum sama þó hann hyrfi. Og svo þegar hann hafði leitt okkur til sigurs í róðrarkeppninni á sjómannadaginn 1998 þá ánöfnuðum við Humarvinnslunni honum og þar er hann ennþá inni á kaffistofu, eftir því sem ég best veit. Greyið Dúddi. Kannski maður sendi honum jólakort. Erfitt líf að vera garðálfur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home