Þá er loksins kominn vetur - allavega í bili.
Stefnan er að reyna að komast einhvers staðar á snjóbretti í vetur. - Ef veturinn heldur áfram að vera vetur.
Ég hef aldrei prófað en það hlýtur að vera gaman. Síðast fór ég á skíði fyrir sex árum. Það var í þriðja skipti á ævinni sem ég fór á skíði og gekk bara nokkuð vel, þ.e. stórslysalaust. Í lok dagsins gat ég m.a.s. staðið í fæturna alla leiðina niður! Vonum að það gangi jafnvel á bretti.
Fjallageiturnar voru að gæla við þá hugmynd að fara norður á Akureyri yfir rúma helgi til að finna snjó í brekkum. Ég kíkti á Hlíðarfjall áðan til að sjá hvort við gætum farið að leggja í hann. Svona leit Hlíðarfjall út í dag um hádegisbilið - ekki mjög freistandi.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home