mánudagur, desember 16, 2002

Ef einhver les þetta fyrir níu í fyrramálið má er sá hinn sami skuldbundinn til að aðstoða mig. Ég er nefnilega að fara í próf í ritgerðasmíðum í frönsku. Við fengum uppgefin tvö ritgerðarefni, annað kemur á prófinu.
Annað efnið liggur nokkuð ljóst fyrir, engin vandræði með það. En hitt er öllu flóknara:

"Bókmenntir næra andann, styðja hann og hugga."
Útskýrið og ræðið þessa fullyrðingu Voltaires. Að hvaða marki styður persónuleg reynsla ykkar þessa kenningu?

Frumútgáfan, ef það hjálpar einhverjum:
"Les lettres nourissent l'âme, la rectifient, la consolent."
Expliquez cette maxime de Voltaire. Peut-on la discuter? Dans quelle mesure votre approche des oeuvres littéraires vous permet-elle de vérifier cette triple vocation des lettres?

Og hvernig á ég að gera ritgerð úr þessu? Hvernig á ég að byggja hana upp? Einhverjar ábendingar? Eða á ég kannski bara að fara í prófið og vona að hitt verkefnið birtist...
Það er miklu auðveldara: Hvert er notagildi þess að læra frönsku fyrir ungan Íslending á 21. öldinni?
Já vonum það.

Minnist mín í bænum ykkar...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home