mánudagur, janúar 20, 2003

Ég fór á LOTR um daginn (soldið síðan, sko) og átti alltaf eftir að segja mitt álit á myndinni góðu. Það verður að taka fram að ég horfði ekki á myndina í því augnamiði að finna smáatriði sem ekki kæmu heim og saman við söguna góðu en þessar breytingar voru fullgrófar.
1. Í fyrsta lagi var hinum góða manni Faramír óleikur gerður með því að hann var birtur eins ágjarn og gráðugur og bróðir hans hann Boromír. Faramír Tolkiens var hinn besti maður og gerði ekki annað en að hjálpa hobbitunum á leið sinni. Hann nestaði og nýskóaði Fróða og Sóma upp áður en hann og hans menn fóru til Mínas Tíríð. Hobbitarnir komu aldrei til þeirrar borgar enda áttu þeir ekkert erindi þangað.
2. Ef mér skjátlast ekki þeim mun meira vildu Enturnir strax frá byrjun ráðast á Ísarngerði, þeir voru ekkert að skræfast þarna inni í skóginum.
3. Það vantaði allt sem hefði getað lokað myndinni, allt uppgjör. Ég veit að þriðji hlutinn er eftir en það er ýmislegt í sögunni sem hefði mátt nota til að loka þessari mynd, hún hefði ekki þurft að vera svona ofboðslega endaslepp. Svo dæmi sé nefnt var ég allan tímann að bíða eftir þegar skógurinn "étur" orkaherinn í Hjálmsgerði, það atriði klárar þá orrustu. Og svo vantaði lokakaflann um Ísarngerði þar sem Ormstunga hendir niður Palantírnum og svo síðast en ekki síst þar sem sigurvegararnir úr Hjálmsdýpi koma til Ísarngerðis og finna það sigrað og Kátur og Pípinn sitja í mestu makindum og reykja pípu - æðislegt atriði. Þannig hefði mátt klára myndina. Thus endeth...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home