mánudagur, janúar 20, 2003

Verið óhræddir, því sjá! ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum.

Í dag er orðið mikið ljós sem lýsa mun innstu hugarfylgsni og hjartakima drengja og meyja. Jón og Auður/Þorbjörg leyfa nú þeim sem þess fýsir að bergja á brunni visku og gamansemi sem fullur er svo út af flóir. Með því að pota í augað hér til hliðar er hægt að transporterast beinustu leið til himinsala þeirra sem þau eru enn að byggja.

Í leiðinni setti ég inn tengil á hinn íðilfagra Brusselfara Atla.is. Frá mínum bæjardyrum séð er það miður hvað hann eyðir miklu plássi í fótbolta en einhverjir hafa víst gaman af því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home