mánudagur, febrúar 03, 2003

Ég fór á Þorrablót Syðra-Lónsættarinnar á laugardagskvöldið. Jahérnahér, ég er skyld svo mörgu fyndnu fólki, skrýtið að ég sé þá svona - maður hefði haldið að þetta hlypi um í fjölskyldunni...
Þetta blót var á margan hátt skemmtilegra heldur en í fyrra og það verður erfitt að gera betur í framtíðinni. Blótið í fyrra var samt örugglega ein eftirminnilegasta skemmtun sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Þar ræður tilviljun ein: að við skyldum uppgötva fullbúinn fimleikasal innan seilingar. Þangað þustu gestirnir prúðbúnir: konur í kjólum og karlarnir í jakkafötum, og fjandinn var laus. Margir fóru í loftköstum á trampólíninu risastóra, örfáir ofurhugar tóku heljarstökk ofan í svampagryfjuna. Aðrir prófuðu tvíslá, þverslá, hringi eða tóku nokkrar gólfæfingar. Ég sá mikið eftir því að vera í síðkjól, það var ekki mjög dömulegt fyrir handahlaupin eða arabastökkin og hvað þetta nú heitir allt, en ég var búin að ná þónokkurri færni í heljarstökkunum og hélt sýnikennslu fyrir þá sem vildu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home