mánudagur, febrúar 03, 2003

Fréttablaðið var aldeilis gleðigjafi í morgun.
Fyrst hló marbendill að fréttinni um gömlu konuna (106) í Noregi. Hún fékk sent bréf á dögunum þar sem foreldrar hennar voru beðnir að láta vita hvort barnið þyrfti akstur skólabíls í skólann. Þessi gamla kona varð mjög ánægð með þessa nýbreytni, þegar hún fór fyrst í skólann, fyrir 100 árum síðan, þá hefur varla verið nokkur einasti bíll í Noregi. Ég var reyndar búin að sjá hana áður en mér finnst samt alltaf gaman að tilsvörunum hennar.

Hinn gullmolinn var pínulítill: smáklausa um að Rússar vildu kæra framleiðendur myndanna um Harry Potter. Ástæðan er sú að útlit húsálfsins Dobby sem birtist í annarri myndinni og leikur einnig stórt hlutverk í þeirri þriðju ef ég man rétt segja þeir stolið frá forseta Rússlands, Vladimir Pútín. Og það er engin lygi, þeir eru sláandi líkir, sami sauðarsvipurinn á báðum. Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín en svo er greinilega ekki, þetta stefnir í harðar milliríkjadeilur. Skoðið þessar fréttir á Moscow Times og Evening Standard.
Besta kommentið kom samt fram á einhverri spjallrás:
"Psst...," wrote one Lord of the Rings-minded instigator on MuggleNet.com, "Gollum looks like George W. Bush."

Svo rakst ég á þetta og hélt ég myndi sálast úr hlátri í tölvustofu í Odda. "The risk of being attacked by a twelve-armed squid of grizzled, patchouli-smelling polygamy?"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home