miðvikudagur, febrúar 12, 2003

Ekki linnir stríðsátökunum í skólanum. Í gær var ég að læra um frönsku byltinguna, skref fyrir skref.
Sá lærdómur blés mér þvílíkum byltingaranda í fylkingarbrjóst að ég ákvað að leggja til atlögu við valdboð yfirvalda og arðrán auðvaldsins. Fyrsta fórnarlambið lá beint við þegar ég hitti Ágústu í hádeginu á Þjóðarbókhlöðunni. Ég hefi nú lýst heilögu stríði á hendur kaffisölunni í Þjóðarbókhlöðunni. Bara það eitt að kókómjólkin kosti 110 krónur í þessari despótísku einokunarverslun er fullgóð stríðsástæða.

Undirskriftalisti er hér að neðan, vinsamlegast kvittið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home