En gaman, komnar niðurstöður úr 2001 censusinum (manntalinu) á Bretlandi.
Kemur í ljós að þar eru fleiri sem segjast Jedi-trúar heldur en þeir sem játa Gyðingatrú.
Ég var, á sínum tíma, undir miklum þrýstingi frá félögum mínum að skrá mig Star Wars-trúar. Mig minnir nú samt að ég hafi krossað við kristnina. En mér fannst Jedi samt soldið fyndið. Eins og öllum. Þetta var brandari, einn stór brandari. Nema kannski fyrir nokkra. Leiðinlegt samt að aðhyllast svona fyndna trú.
Ég gat samt ekki svikið manntalið!!! Í gögnum breska ríkisins er því allavega ein kristin manneskja skráð á 17 Ironmonger's Place. Og allavega tveir Jedi-trúaðir, ég man ekki hvað hinir tveir krossuðu við.
Nú býr ekkert af þessu fólki lengur í E14. Ég er enn með samviskubit gagnvart breska ríkinu, þeir vita ekki betur en að ég búi þarna ennþá...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home