Ég ætlaði á bretti í dag, var búin að plana í mörg ár að gleðidaginn 27. febrúar 2003, hinn sama dag og lágfargjaldaflugfélagið IcelandExpress hæfi göngu sína, myndi ég stíga í fyrsta skipti á einskíðisplanka. Að ósi stefna allar ár og ég var þess fullviss að elfur lífs míns myndi bera mig til að sjá drauma mína rætast þennan ákveðna dag.
Þess vegna læddust tvö lítil tár fram á hvarma mína þegar ég í dag, daginn mikla, komst að því að það er lokað á öllum skíðasvæðum í nárgrenni höfuðborgarinnar vegna vinda og veðra.
Nú hef ég látið boð út ganga um að hver sem vilji og sem vettlingi geti valdið megi koma með mér í pílagrímsförina miklu sem farin verður frá Úlfljótsvatni yfir í Reykjadal við Hveragerði á laugardag eða sunnudag. Ef til vill byrjum við á öðrum stað og endum þar af leiðandi annars staðar en alltént verður þetta frægðarför: Pílagrímsförin mikla!
Ef þetta verður þá ekki önnur Ferð sem aldrei var farin...
Þá færi ég sko að gráta.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home