Ég og Ágústa lentum í soldið fyndnu í gær. Umferðarlagabrjóturinn Herdís hélt uppteknum hætti þegar hún samþykkti að reiða Ágústu áleiðis heim; allavega niður í móti... Einn bílstjóri sem við mættum á leið okkar heillaðist svo af barnslegri gleðinni sem skein úr augum okkar að hann sneri við snarlega, elti okkur uppi og bað um að fá að taka myndir af okkur - honum fannst þetta svo "fyndið konsept": að reiða!!! Myndirnar vildi hann nota í netfréttabréf einhvers fjármálafyrirtækis... e-ð soleiðis - kemur í ljós, hann lofaði að senda mér þetta, ég bíð spennt.
Þegar til kom tók hann samt bara myndir af fótunum á okkur, sýndist mér. Þannig fór nú um okkar "fifteen minutes of fame"... frægir fætur - það er nú skárra en ekki neitt...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home