þriðjudagur, mars 11, 2003

Ég hélt ég fengi loksins séns á eina vetrarsportinu sem ég get eitthvað í en fyrst svellið á Tjörninni var ekki orðið mannhelt í morgun þá gerist það ekki í dag. Æ leiðinlegt. Tók skautana með mér í skólann í morgun í góðri von, ætlaði að taka einn hring áður en ég mætti... but no. Líklega er ég orðin of sein þetta árið. Hefði betur farið út í sveit og freistað gæfunnar á Rauðavatni í stað þess að bíða eftir að frysti í miðbænum. Ég var föst í minningunni um síðasta vetur þegar Tjörnin var frosin í einn og hálfan mánuð samfleytt. Og ég lét þá gósentíð fram hjá mér fara vegna þess að ég "hafði svo mikið að gera" - léleg afsökun.

Annars er ég búin að uppgötva nýtt sport sem ég lofaði sjálfri mér að prófa einhvern tíma. Kite-skiing!!! Ég sá í gær smá myndskeið um einn soleiðis garp sem flaug yfir fjöll og firnindi í Noregi með skíði á fótunum og fallhlíf í höndunum - leit nokkuð vel út. Mig langar líka að svífa... bæði svona og líka einhvern tíma í svifdreka.

Ég fór á BANFF film festival í gær. Þar voru sýndar alls konar jaðarsportmyndir: fjallgöngur, BASE-jumping, klifur, áhættuskíðagarpar og kayak-ræðarar. Fínt adrenalín á stundum. Gaman að fá svona bíó-tilbreytingu, ekki alltaf sömu rómantísku gamanmyndirnar með klígjulegu klisjuívafi.
Annars bauð Hildur systir mér í bíó á föstudaginn, við fórum að sjá Nóa albinóa. Óhætt að mæla með henni. Heimsklassamynd frá litla Íslandi. M.a.s. Hildur gagnrýnir gaf henni góða umsögn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home