mánudagur, mars 24, 2003

Rúla Ársælsmenn Landsbjörgu?
Við rúluðum allavega "stóru snjóflóðaæfingu Landsbjargar" á sunnudaginn. Af 24 björgunarmönnum sem Björg skráði inn á svæðið voru 10 óbreyttir Ársælsliðar + garparnir okkar þrír sem höfðu verið á fagnámskeiðinu. Afgangurinn: 4 menn með leitarhunda og reitingur úr öðrum sveitum.
Einnig er vert að minnast á það að þeir Ársælsmenn sem mættu voru að miklum meiri hluta nýliðar og að miklum meiri hluta kvenkyns.
ERGO: Hverjir rúla Ársæli?!!
múhahaha....

Sunnudagurinn var akkúrat það sem ég þurfti til að skola óbragð helgarinnar úr hausnum á mér. Var að vinna bæði kvöldin á ónefndum skemmtistað í miðbæ óttans. Það er langt síðan mér fór að leiðast þessi staður en ég þraukaði... þangað til núna um helgina að ég gjörsamlega tapaði gleðinni. Hvað var það sem gerði útslagið? Ungmellur á útopnu veifandi skorunni upp í hvers manns nef til að veiða drykk. Fullir ógeðiskallar sem bíta á agnið, verða frústreraðir þegar gelgjurnar yfirgefa þá eftir að þeim hefur blætt út á barnum og fara því að áreita starfsstúlkurnar - klípa fyrst og spyrja svo. Playlistinn fastur á repeat. -Ég gæti haldið áfram...
Ég var vart mönnum sinnandi, sérstaklega á föstudagskvöldið. Kannski hef ég óafvitandi stjakað óþyrmilega við Chelsea Clinton á leið minni um salinn eða jafnvel hvæst á hana, eins og aðra gesti staðarins. Ekki þekkti ég hana í sjón, frekar en annað frægt fólk for that matter, ég bara las þetta í blaðinu í morgun og varð yfir mig hissuð. En mér finnst mjög fyndið að vinir mínir hafi svindlað sér í VIP-röðina, mútað dyravörðum etc. meðan dóttir fyrrv. forseta BNA beið í röð eins og annað fólk.

Þess vegna fannst mér mjög gott að komast aðeins út fyrir borgarmörkin og gantast í snjónum. Við reyndum fjórar saman að renna okkur niður brekku í skelinni (sjúkrabörunum) en hún rennur ekki mjög ljúflega, sérstaklega ekki í þungri og dúpri lausamjöll. Bob-sleðadraumarnir gufuðu því upp en í staðinn kom nýtt ævintýri: skelin bundin aftan í vélsleða... mjög gott.
Af hverju er maður alveg hættur að leika sér í snjónum eins og þegar maður var lítill? Það er ennþá jafn skemmtilegt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home