Kjálkaorða vikunnar fer til ungra og framtakssamra verslunarrekanda í Borgarnesi. Guðrún, litla systir mín og Palli, litli frændi minn (hvorugt lítið þó, - bæði sjö ára) reka sögubúðina Hatt og blað inni í gangi hjá ömmu og afa. Þar er hægt að kaupa custom-made sögur; maður kaupir sögu og ræður sjálfur um hvað hún er. Auk þessa er hægt að kaupa hin ýmsustu listaverk hagleiksbarnanna í ýmis efni.
Þegar þeim frændsystkinunum þótti eitthvað farin að hjaðna kaupgleði frændfólksins réðust þau í farandsölu og gengu í hús í götunni. Heyra mátti að viðskiptin höfðu gengið vel þegar þau komu blaðskellandi inn úr dyrunum til baka.
"Við seldum ljótasta verkið okkar!!!" kallaði Palli sigri hrósandi.
"Já, það var geðveikt ljót mynd sem Palli teiknaði" staðfesti Guðrún.
Og þar sem það þarf svo sannarlega mikla sölumennskuhæfileika til að selja geðveikt ljóta mynd bera þau sigur úr býtum, þrátt fyrir harða samkeppni.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home