mánudagur, september 01, 2003

My days are numbered!
Ég á pantað flug út til London 30. sept, flýg frá London til Carcassonne daginn eftir og þaðan er svo klukkutíma lestarferð til Toulouse.

Jólin held ég að öllum líkindum hátíðleg í Glasgow með Ágústu og Þórhildi. Það er líklegasta staðsetningin, aðrir kostir eru Turku í Finnlandi og Toulouse í Frakklandi. En hei! Það er hægt að fá rjúpu í Skotlandi. Þá getum við líka horft á rokktónleika á aðfangadagskvöld, eða eina góða bíómynd.
Það er enginn helgiblær yfir Bretlandi á aðfangadagskvöld, engir sálmar, engin messa, ekkert ávarp biskups. Á aðfangadagskvöld er partí í Bretlandi. Svo liggur öll fjölskyldan saman í þynnku á jóladagsmorgun og deilir alkaseltser meðan hún tekur upp pakkana. Fallegt...

Þekki ekki jafnmikið til jólahalds í Finnlandi eða Frakkaríki.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home