föstudagur, júní 27, 2003

Hetjan Herdís fór í fyrsta skipti í klettaklifur utanhúss á miðvikudaginn. Þetta þótti svo fréttnæmt að gerður var út ljósmyndari frá Mogganum til að fótógrafa herlegheitin. Þar sem ég er nú orðinn eða að verða landsfrægur klifrari verð ég að standa undir nafni og halda áfram, fer aftur í kvöld, stanzlaust fjör.

Í öðrum stúlknahóp spilaði ég fussball á Klambratúni í gærkvöldi. Á leiðinni heim gengum við í barndóm aftur. Ég veit ekki hvað gerðist, það hafði einhver skrýtin áhrif á okkur að labba heim með boltann undir hendinni, veðrið indælt, sumarið rétt að byrja, svo margt skemmtilegt framundan, áhyggjur og ábyrgðartilfinning órafjarri - flábælt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home