miðvikudagur, maí 14, 2003

Prófum er lokið, guði sé lof.
Síðasta prófið gekk ágætlega. Aldrei áður hefur síðustu-stundar-lestur gagnast mér svona rosalega vel. Svarið við einni 10% spurningu rakst ég á um sex-leytið í morgun og við annarri eins um hálftíma fyrir próf. Aldrei aftur skal ég efast um það að lesa nóttina fyrir próf þegar dagarnir hafa ekki dugað til.
Ég var mjög heppin í þetta skiptið. Það sem ég las ekki kom ekki, heppilegt það! Hannes Hólmsteinn, málpípa almenns frelsis og frjáls vals einstaklinganna leggur nefnilega fyrir próf eftir forskriftinni: Uppgefin eru 10 ritgerðarefni, svarið þeim ÖLLUM í stuttu en skýru máli.

Í gærkvöldi missti ég út úr mér við Þórhildi: "Ég þyrfti svo að hafa einn dag í viðbót til að komast yfir efnið." En ég var fljót að sjá mig um hönd. Og núna er ég fegnust í heimi að hafa ekki haft einn dag í viðbót og vera, ef allt gengur eftir, þrátt fyrir allt búin með síðasta prófið sem ég tek við Háskóla Íslands - svo er það bara Toulouse og BA-ritgerðin. Húrra fyrir mér!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home