fimmtudagur, apríl 17, 2003

Hvernig er hægt að vita hvað rithöfundur hugsar meðan hann skrifar? Hver getur vitað hver var tilgangurinn með skrifum hans eða hvaðan hann fékk innblásturinn? Það er ekki hægt. Það túlkar hver á sinn hátt. Stundum kemur eflaust fyrir að einhver hittir á rétt svar, eða eitthvað nálægt því en hvernig á maður að vita hver af tugum eða hundruðum túlkenda hefur rétt fyrir sér?

Þetta er eins og einhver sagði um kristna trúflokka: Það eru til mýmörg afbrigði af þessari sömu trú, fjöldinn allur af trúflokkum, -hópum og söfnuðum. Margir þessara söfnuða boða tortímingu þeirra sem ekki fylgja þeirra þrönga hópi. Þannig að það er eins gott að vanda valið, maður veit aldrei hver hefur rétt fyrir sér. Gefum okkur að í heiminum séu 100.000 afbrigði af ýmsum trúarbrögðum. Gefum okkur að einn af þessum 100.000 af þessum trúflokkum hafi rétt fyrir sér en hinir rangt. Mörg þessara trúarbragða eru sannfærandi, athyglisverð eða hafa eitthvað annað til síns ágætis. Ef maður kynnti sér nú alla kosti sem í boði eru og ætlaði sér að velja, -aðferð frjáls markaðar, eins og Hannes Hólmsteinn kallar það,- þá eru líkurnar á því að maður velji "rétt" einn á móti hundraðþúsund. - Það er mjög lítið.

Bara svona saklausar vangaveltur um lífið og tilveruna, ég er ekki að íhuga trúskipti eða trúleysi, hafið engar áhyggjur. Það má ekki taka þetta blogg of alvarlega.
Stundum skrifa ég orð sem mér finnst skemmtileg sem slík, sem orð. Stundum set ég fram hugmyndir sem mér finnst forvitnilegar eða athyglisverðar án þess að ég sé beint að verja þær eða vinna að framgangi þeirra af hugsjón, - jafnvel án þess að aðhyllast þær sjálf. Stundum kem ég með tilvitnanir sem hafa fangað athyglina þó þær séu ekki beinlínis eitthvað sem ég samsama mig með. En svo getið þið túlkað á ykkar veg.
Hvað vitið þið sosum hvað ég er að hugsa?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home