þriðjudagur, apríl 15, 2003

"Jusqu'ici, tout va bien. Jusqu'ici, tout va bien. Jusqu'ici..."
sagði maður í frjálsu falli ofan af svölunum í blokkinni.

Ég bíð þess að mér hegnist fyrir leti annarinnar, eða öllu heldur fyrirhyggjulausa forgangsröðun. Skuldadagar nálgast óðfluga í hrönnum, skiladagar ritgerða, verkefna og svo prófdagar. Þið fyrirgefið endasleppt orðagjálfur í þetta skiptið og komandi þögn.
En hafið engar áhyggjur af mér.
- Hingað til gengur allt vel. -

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home