mánudagur, maí 05, 2003

Cook, hinn mikli sjó- og landkönnuður kom færandi hendi úr hringferð sinni um heiminn. Eitt af því sem hann færði var orðið tabú sem hann hafði heyrt á Tongaeyjum. Á Tonga-tabú-eyjaklasanum í Kyrrahafi, sem er partur af hinum stærri Tongaklasa, búa leðurblökur sem konungsættinni þykja sérstakt lostæti. Til þess að enginn annar megi njóta þessa munaðar eru leðurblökurnar tabú fyrir óbreytta Tonga. Í Tongönsku er orðið tabú lýsingarorð, notað um það sem ekki má gera og þangað sem ekki má fara.

Í þakklætisskyni fyrir vingjarnlegar móttökur færði Cook kónginum á Tonga að gjöf fullvaxna risaskjaldböku frá Galapagos, sem þótti, að öðrum gjöfum ólöstuðum, sú hin merkasta af gjöfum gestanna. Skjaldbakan var tekin inn í konungsfjölskylduna med det samme, hún fékk titilinn Tu'i Malila, og var þar með orðin afkomandi guðanna eins og konungsfjölskyldan öll. Tu'i Malila skipaði sérstakan heiðurssess við hina konunglegu kavadrykkju en milli embættisverka lagði hún sig eða rölti um í hallargarðinum með hvítu konungsgæsirnar sér til félagsskapar. Konungar komu og konungar fóru en alltaf var það sama konunglega skjaldbakan Tu'i Malila sem gekk hægum og virðulegum skrefum um hallarflatirnar. Hún var enn á lífi þegar núverandi kóngur Vakalahimohe'uli, fimmti, Tu'i Ha'a Takala'ua var að alast upp, (risinn sem nú er kallaður heimsins stærsti kóngur í heimsins minnsta konungsríki). Hún bar þá orðið ör á skildinum eftir skógarelda og árekstur við flutningabíl, enda hafði hún verið orðin nokkuð sjóndöpur. Við andlát hennar, tveimur öldum eða þó nokkrum manns- og gæsaöldrum eftir komu Cooks, árið 1966, var lýst yfir þjóðarsorg á Tonga.

Það sem átti upphaflega að vera umræða um tabú, þróaðist út í sögustund frá Tonga. Ég stóðst ekki mátið þegar ég rakst á söguna af Tu'i Malila. Í stað þess að sökkva mér ofan í djúpar hugleiðingar um það sem ekki má segja sökk ég á kaf í ferðasögu Unnar og Þorbjarnar sem sigldu á skútunni sinni um Norður- og Suðurhöf. Nú get ég ekki beðið eftir að klára prófin og ferðast aftur með þeim í huganum um framandi slóðir og kynnast öðrum menningarheimum, sögum og siðum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home