Nú búast vinir og vandamenn við því að ég sé eldheitur hugsjónamaður og áróðurbulla eftir þeim hugmyndum sem virðast vera á kreiki í þjóðfélaginu um stjórnmálafræðinema.
Þetta er bara ekki rétt.
Ég, fyrir mitt leyti, hef engan áhuga fyrir því að vera með áróður fyrir einn flokk eða annan á þessum miðli eða annars staðar. Ég vil varla einu sinni gefa upp hvað ég sjálf ætla að kjósa. Ég gæti sagt: That's mine to know and yours to find out... ef ég nú vissi það sjálf.
Þess vegna gladdist ég mjög í hjarta mínu þegar ég rakst á þessa ágætislausn og mæli með þessu við alla þá sem koma til mín í leit að áróðri. Mínu atkvæði hefur nú verið úthlutað til Sivjar Friðleifsdóttur, þess vegna þyrfti ég eiginlega að drífa mig í að breyta um lögheimili. Vitið þið um gott heimili í kragakjördæminu sem er tilbúið að hýsa mig á pappírum rétt yfir kosningarnar?
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home