föstudagur, maí 23, 2003

Á laugardaginn keppi ég með fræknu liði nýliða á björgunarleikum Landsbjargar.
Í hverju er keppt? Björgun. Maður fær stig fyrir að geta bjargað sér og öðrum fljótt og fumlaust. Ég veit ekki meir. Við erum allavega búin að æfa okkur heilmikið og læra margt. Upprifjun á fyrstu hjálp, alls konar línuvinnu og tryggingar, félagabjörgun, sig með börur o.m.fl.
Einhverjar efasemdarraddir hafa heyrst, þess efnis að við séum ekki nægilega vel undir þetta búin, þetta séu flókin verkefni sem krefjist meiri þekkingar og kunnáttu en hægt er að ætlast til að við höfum eftir eins árs þjálfun.
En hvað með það þó við höfum ekki nema grunninn og varla það í sumum efnum. Hvað með það þó ég hafi farið mína jómfrúarsigferð í fyrradag og tryggingaþekking eftir því. Við tökum þátt af sönnum ungmennafélagsanda: til þess að hafa gaman af. Ef allt bregst þá fáum við þó allavega Skarphéðinsbikar fyrir bjartsýni, ekki satt? Hver veit nema langþráður draumur minn rætist: Bjartsýnisverðlaun Bröstes verði vakin upp frá dauðum bara fyrir þetta eina tækifæri. Það væri nú gaman.
Allavega erum við reynslunni ríkari; kunnum að setja Kendrix á varanlega hryggbrotinn mann og donka tásmenni aftur í eyrliðinn með nefgrjóti... margt sem maður lærir í björgunarsveit!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home