Missti af fyrstu atrennu útileguþrennu sumarsins í Skaftafelli. Þrátt fyrir að færri hafi sóst eftir blíðunni í Skaftó en rokinu á Varmalandi í fyrra var þar svo sannarlega góðmennt. Sannarlega slæmt að komast ekki með, ég hefði þá kannski getað hindrað einn eða tvo sólbruna enda fer ég sjaldnast úr húsi án sólarvarnar. - Do make a note to self on that one, þið maurar!
Það fór ekki fram hjá mér að áætlunarflugið til Grænlands er byrjað. Hýsti einn Frakka í millilendingu til Grænlands. Á sunnudeginum fór ég svo í fermingarveislu hjá frænda mínum. Fermingunni hafði verið frestað langt fram eftir sumri vegna þess að hann á frændfólk á Grænlandi. Það var ekki fyrr en núna sem þau gátu mætt í perlusaumuðu sparipelsunum sínum, voða fín öll sömul.
Eftir vinnu í gær trítluðum við Halla upp á Esjuna. Við ætluðum að finna hæsta toppinn en töpuðum áttunum í skýjunum. Ég er samt viss um að við löbbuðum yfir hann amk þrisvar. Getur annars einhver kunnugur sagt mér: er Hábungan e-ð merkt? Er skilti sem segir : Velkomin á Hábungu, hæsta punkt Esjunnar?
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home