sunnudagur, ágúst 31, 2003

Hélt upp á ammlið mitt með látlausu matarboði á Kárastígnum, sló saman við kveðjupartí Þórhildar sem er nú lögð af stað í sólarhringsferðalag sitt til Turku í Finnlandi. Gat ekki sent hana til útlanda án þess að vera búin að láta hana smakka hval. Matreiddi hrefnukjöt fyrir vinina á fös og svo aftur fyrir fjölskylduna á lau. Fengum fínt kjöt á fös, aðeins meira lýsisbragð af því sem ég eldaði á lau en það slapp fyrir horn. Svo var kjúklingur í aðalrétt á fös, hrefnan var rétt til að smakka.

Fyrir þá sem hafa áhuga þá eru hérna lauslega rissaðar uppskriftir:

Hrefnusteik hvalskoðarans!!!
Skerið kjötið í tæplega 1cm þykkar sneiðar, berið á olíu og piprið. Steikið graslauk upp úr smjöri og bætið svo furuhnetum út í. Þetta er sett til hliðar og borið fram sér. Kjötið er steikt eftir smekk. Borið fram með piparsósu og rifsberjahlaupi.

og svo kjúklingurinn
Takið skinnið af kjúklingnum (læri eða bringur), leggið bitana í eldfast mót, hálffullt af vatni og bakið. Skerið í bita rauð epli og avókadó og saxið valhnetur. Steikið eplin og hneturnar upp úr olíu og púðursykri, bætið kanil út í og rétt undir lokin avókadóbitunum. Kjúklingabitarnir gegnsoðnir eru líka steiktir í smástund upp úr olíu og púðursykri, rétt til að fá bragðið.

Ég nota helst ekki mælieiningar, hvorki tíma né rúms. Áætlið hverjum manni nóg og eldið þar til maturinn er tilbúinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home