Hvað heldur þú? -
Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Þessa spurningu hef ég fengið allnokkrum sinnum undanfarna daga; - það fylgir því að vera leiðsögumaður á hvalaskoðunarbát!
Heimspressan hefur leitað álits míns, þegar veit ég til að rödd mín hefur hljómað á BBC Worldwide Radio og fésið á mér birtist væntanlega á næstu dögum á sjónvarpsskjám þó nokkurra Breta. Auk þess hefur það lent á filmum aðskiljanlegra tímarita og fréttablaða sem ég kann ekki að nefna.
Hvert er svo álit mitt?
Þegar ég hef sett upp spekingslegan svip, - eilítið áhyggjufullan, segi ég að ég hafi fyrst og fremst áhyggjur af því hvaða áhrif veiðarnar hafi á hvalaskoðunarbransann. Reyndar hefur komið mér á óvart hversu lítil viðbrögð ég hafi fengið frá gestum okkar. Aðaláhyggjuefnið sé það að fyrstu hrefnurnar sem fara eru augljóslega þær gæfustu og forvitnustu, þær sem gefa best færi á sér; en þetta séu einmitt líka þau dýr sem okkur og gestum okkar finnst mestur fengur í að sjá. Þegar þau eru farin og hinar hrefnurnar orðnar lafhræddar við allar bátaferðir, þá eru okkar ferðir strax orðnar miklum mun síðri. Hrefnan er sá hvalur sem við sjáum langoftast og mest af - enda algengasti hvalurinn á Íslandsmiðum.
Hvalfriðun hvalanna vegna finnst mér ástæðulaus í þessu tilviki. Áætlaður fjöldi hrefna við Ísland var u.þ.b. 55.000 við síðustu talningu, þessar veiðar höggva ekki stórt skarð í íslenska hrefnustofninn. Ef eitthvað er mætti heldur að grisja þær enn frekar til þess að hlífa fiskistofnum, ef menn vilja á annað borð vera að stjórnast í jafnvæginu í lífríki sjávarins.
Annað sem við Íslendingar þurfum að vega og meta er það hvort raunverulegur ágóði er af hvalveiðum. Ofurverndun hvala á sér óneitanlega (en illútskýranlega) mikið fylgi á alþjóðavettvangi. Bregðist heimurinn hart við getur varla talist skynsamlegt að streitast við og bíða skaða af. Þrátt fyrir að okkur sé meinilla við að þurfa að hlíta afarkostum alþjóðasamfélagsins, sérstaklega þegar bönnin virðast ástæðulausar væmnisfriðanir, þá kann að koma sú stund að okkur sé nauðugur einn kostur.
Þetta er klárlega á gráu svæði og margt sem þarf að taka með inn í myndina. Sjálfri væri mér hjartanlega sama um þessar veiðar ef bátunum hefði verið sleppt lausum annars staðar en á hvalaskoðunarsvæðunum. Einhver dýr verða skotin í Faxaflóanum þar sem við siglum út á hverjum degi. Hæstvirtur sjávarútvegsráðherra beindi "vinsamlegum tilmælum" til skotmanna að þeir færu út fyrir línu sem dregin var, að mig minnir, frá Garðsskagavita í Þormóðssker. Þá er bara að bíða og sjá hversu hæstvirtur herra ráðherrann er; hversu mikið mark er tekið á "vinsamlegum tilmælum" hans.
Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum, vikum og mánuðum.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home