sunnudagur, nóvember 23, 2003

Komin heilu og höldnu heim ùr ferdalaginu minu. Eftir ognardaginn Lyon-Kaupmannahöfn gekk ferdin storslysalaust fyrir sig. Hitti Sigrùnu Osk i Kaupmannahöfn, sem og Berglindi Ros. Gaman ad tvi, hafdi hvoruga hitt nema einu sinni i myflugumynd sidustu 1 1/2 - 2 àrin. Fyrir tilviljun hittum vid Sigrùn svo Agùst Elfar, komumst ad tvi ad hann og Sigrùn eru i sama skola. Nog af Islendingum i Köben.
Turfti ad skipta um flugvöll i London à leidinni heim. Fyrsta skipti sem ég kem à Gatwick. Nù à ég bara eftir ad koma à Luton og City...
Gaman ad fà trjà klukkutima i London. Vissi fyrst eiginlega ekki hvad ég aetti ad gera, hvar ég aetti ad byrja. Tar sem ég var hinn fullkomni tùristi med trodinn bakpoka, pinkla og pjönkur, fannst mér tilhlydilegt ad blandast hinum turistunum. Var à leidinni frà Piccadilly nidur Shaftesbury Av. tegar ég fékk hugljomun. Snidgekk Turistatorg og beygdi nidur i Chinatown. Akkurat passlegt til ad eyda teim tima sem eg hafdi.

Merkilegt ad koma heim frà ùtlöndum, nema hvad ad "heima" er i "utlöndum". Hmm...

Um leid og ég kom heim turfti ég ad demba mér i ad undirbùa fyrirlestur fyrir fimmtudaginn. Bölvadi medbraedrum minum i Metroinu à fimmtudagsmorguninn tegar enn ein lestin rann 3/4 full frà pallinum. - Heimska folk sem ekki kann ad troda sér i Metroid. Hver laug tvi ad ykkur ad fartegar aettu rétt à personulegu andrymi à hàannatima tegar folk tarf ad komast leidar sinnar?

Eg var ekkert sérlega vel upplögd: litid sofin, illa undirbùin og à leidinni ad verda of sein i timann tar sem ég àtti ad halda fyrirlesturinn. Augu stundvisra samnemenda minna hvildu à mér tegar ég trampadi inn i timann fimm minùtum og seint. Tegar ég hafdi tillt mér nidur i fremstu röd stillti kennarinn sér upp fyrir framan mig. - Hvad nù? hugsadi ég. Atti von à ad refsivöndur franska skolakerfisins myndi skella à mér af öllu afli. Fyrir seinkomur, fyrir ad hafa skropad sidast og fyrir ad vera almennt séd latur onytjungur. - Sem ég er audvitad ekki, en ég vissi hreint ùt sagt ekki hverju ég maetti eiga von à.
Eg var sem sagt bùin ad bùa mig undir tad versta.

- Tù ert Erasmus-stùdent, er tad ekki?
Eg jàtti tvi, vissulega er ég ein af teim.
- Eg var ad komast ad tvi ad tid Erasmus-stùdentar erud ekki metnir à sömu forsendum og almennir nemendur. Tù tarft sem sagt ekkert ad flytja tennan fyrirlestur frekar en tù vilt. Tér er frjàlst, ef tù vilt, ad skila bara inn skrifudu eintaki. Ef tù ert ekki tilbùin med tetta tà màttu lika skila i naestu viku, eins og tù vilt.

Hversu margar hafa taer verid, svefnlausar ritgerdar- og profanaetur tar sem madur oskar sér... bara ef ég gaeti fengid einn dag i vidbot... hàlfan dag... einn klukkutima jafnvel. Aldrei bjost ég vid ad verda baenheyrd.

I gaer for ég svo à fjöll med skolanum, mjög saklaust samt. Ratleikur - hlaupid upp um haedir og hola til ad reyna ad nà i sem flesta posta à fjorum klukkutimum. Var sett i lid med hinni polsku Miröndu, fjallageit ùr Karpatafjöllunum. Erum bùnar ad taka frà fyrstu helgina i des til ad fara eitthvad fyrir alvöru, aetlum ad reyna ad finna eitthvad haerra en 2700m, settum markid tar - og af nogu er ad taka i Pyreneafjöllunum. Allt ùtlit fyrir langa helgi...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home