laugardagur, október 11, 2003

Daglegur rùntur stùdenta i hùsnaedisleit byrjar kl. 9 à morgnana tegar CROUS opnar. Tegar dyrunum er lokid upp trengir sér inn hopur folks sem tegar beid vid dyrnar. Tarna birtast daglega nyjar auglysingar um alls kyns husnaedi. Vandinn er bara ad auglysingarnar eru fàar og margir sem eru ad leita.
Ef tù aetlar ad nà àrangri tarftu ad vera snoggur, - fyrstir koma, fyrstir fà. God ibùd getur tegar verid leigd fyrir kl. tiu.

Yfirleitt sér madur margt af sama folkinu aftur à naesta stoppi kl 10, tegar CRIJ opnar. Tar er enn fleira folk enda hanga tar lika uppi atvinnuauglysingar og tar er haegt ad komast fritt a netid ef tù nennir ad bida.

CROUS er ekki opid à laugardögum tannig ad ég gat sofid klukkutima lengur tar til CRIJ opnadi. Mér til vonbrigda en ekki til mikillar undrunar voru engar nyjar auglysingar tennan daginn, enda laugardagur.

Hins vegar hitti ég tar stràk sem spurdi mig hvort ég vaeri ad leita ad herbergi, hann var ad leita ad medleigjanda. Vid roltum saman ad skoda stadinn. A leidinni komst ég ad tvi ad hann er fjallaleidsögumadur og fjallgöngufanatik tannig ad vid àttum allavega eitthvad sameiginlegt, ekki slaemt. Ibùdin var allt i lagi, smekklaus i litasamsetningum og meira drasl en ég kaeri mig um en ekki illa farin og stadsetningin àgaet.

Eg aetladi ad fara ad taka simanùmerid hans til ad svara honum tegar ég vaeri bùin ad skoda adra ibùd kl. tvö. Tà segir hann upp ùr turru:
- Mig langar i tig; viltu rida?
I tvaer nanosekundur stardi ég à hann furdu lostin, forbavset, gobsmacked. Svo fékk hann àkvedid NON - NEI og ég labbadi öruggum skrefum i àtt ad ùtidyrahurdinni.
Ad baki mér spurdi hann aftur: - Ertu viss? Langar tig ekki?
Hann stod enn i sömu sporum og ég fann hvernig hann afklaeddi mig i huganum tar sem hann horfdi à eftir mér.
Eg fullvissadi hann um tad ad ég vaeri viss i minni sök, opnadi ùtidyrahurdina fumlaust og takkadi Gudi og godum vaettum fyrir tad ad hann hafdi ekki laest.
Au revoir.
Hurdin skellur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home