Fyrsti kuldi vetrarins kominn og farinn, snórinn kominn og farinn úr fjöllunum. Hvort tveggja hefði mátt dvelja lengur mín vegna. Ég vil frekar hafa kulda en rigningu. Nýliðapróf björgunarsveitarinnar Ársæls virðist ætla að verða blautt, - blautt og langt. Hvers vegna leggur maður þetta á sig? Allt til að geta svo farið að bjarga heimskum túristum og rjúpnaskyttum sem kunna ekki á áttavitann sinn. Ég er ekki með öllum mjalla...
Ég hef fengið mörg góð ráð um dagana, eitt bættist við í gær. Maggi skipstjóri bað mig hátíðlega að gera það eitt fyrir sig að fara nú ekki að kyssa einhverja prinsa sem reynast svo vera froskar við nánari athugun. - Ef ég samt lenti í því þá ætlaði hann að koma mér til bjargar og lemja þá með kústinum.
Svo erum við á leiðinni til Ghana einhvern tíma í óljósri framtíð til að veiða túnfisk. Gæti orðið gaman í Ghana. Mig langaði frekar til Galapagos, en hann langaði ekki aftur að búa í Ekvador.
Kannski ég verði bara skipstjóri þegar ég verð stór... eða forseti... eða rithöfundur... eða bara óbreyttur flakkari og frásegjari.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home