miðvikudagur, september 17, 2003

Ég hef verið tíður gestur á kaffihúsum borgarinnar síðustu daga með ýmsum vinum og vandamönnum. Nú geng ég á listann að hitta fólk sem ég hef lengi verið á leiðinni hitta, ljúka því af áður en ég fer.

Annars var mér bent á það í gær að eftir því sem maður fer oftar í burtu, þeim mun minni áherslu leggur maður á að kveðja alla áður en maður fer. True, sérstaklega þegar maður er kannski bara að skreppa heim milli utanfara. Mér finnst eiginlega ég rétt vera að skreppa í burt, ég veit líka að þessir 8 mánuðir eiga eftir að líða eins og hendi væri veifað. Ég á varla eftir að hafa tíma til að gera allt sem ég stefni á að gera. I'll be back before you know it... það er ekki eins og ég eigi ekki eftir að sjá ykkur öll aftur.

Þórhildur er ekki komin með heimþráð. Það er vel, þannig á það að vera og þannig verður það yfirleitt ósjálfrátt. Hver getur verið að standa í því að vera með heimþráð þegar það er svo margt skemmtilegt hægt að gera. Það er nebbla svo margt!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home