- Finnlandsfarar og Skotlandsfari netvæddir. Það er vel. Blogg er undursamleg uppfinning fyrir flakkara. Mikil framför frá rafrænni fréttabréfaútgáfu í fjölriti sem þó var mikil framför frá því sem viðgekkst á undan því (sem varla nokkur maður man hvað var).
- - - - -
- Ég er búin að ráðfæra mig við fjölda fólks og öllum ber saman um það sé gaman að vera til, - en eins hljóti að vera leiðinlegt að vera te. Ég veit ekki um neinn sem myndi vilja skipta, - verða te.
- Hvernig ætli það sé með samkynhneigða; er virkilega hægt að "snúa" fólki? Ekki það að ég hafi neinar áhyggjur af því að mér verði snúið, - ekki það heldur að það séu sosum slæm örlög að verða samkynhneigður, ég legg ekki mat á það hér. Held allavega að ef mér yrði snúið eitthvert þá myndi ég frekar vilja verða lesbía heldur en að verða te, ef ég mætti velja... jæja, húfff... hætt að tala...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home