þriðjudagur, október 28, 2003

Eftir ognarkalda seglbrettasession og metblogg beid min ovaent ànaegja à föstudagskvöldid. Sebastien, fyrrv. menningarfulltrùi franska sendiràdsins à Islandi, (einn tridji islensk-franska ferdatrieykisins Herdis-Quentin-Sebastien) var i heimsokn hjà félaga sinum, Aurelien, i Toulouse og ég for og hitti tà à föstudagskvöldid. Tar hitti lika ég hina islensku Alex sem er ad laera tonlistarfraedi i litla gettoskolanum minum ... okkar. Islenska landslidid i Toulouse telur sem sagt fjora en ekki trjà.

Eg stoppadi samt ekki lengi tvi ad min beid hàlfkarad alpastart morguninn eftir - fyrsta fjallganga annarinnar med skolanum. Til ad nà rùtunni sem keyrdi hring um baeinn turfti ég ad rifa mig upp um hàlffimm og hlaupa ùt i kuldann.
Eg var keyrd sudur i Pyreneafjöllin àsamt fridu föruneyti, um sextiu nemenda hopi, auk kennara og leidbeinendanemenda.
Afangastadurinn var Pic de Fourcat. Fourcat tydir gaffall à Occitönsku, màllysku sem er ùtdaud sem hvunndagsmàl en lifir enn i örnefnum i héradinu. Til minningar um tvityngda fortid birta öll götunafnaskilti i Toulouse fyrst franska nafnid og svo götunafnid à occitönsku, allavega i elstu hverfunum.

Eg hafdi valid ad ganga med hopi eitt, med teim sem gengu lengst og hradast. Komst ad tvi ad ég tarf ad koma mér i betra form en ég er i... Annar leidbeinandinn okkar, hàfjallahomminn Stephan, gat ekki hugsad sér ad vera meira klaeddur en i stuttbuxum og stuttermabol. Tad var ekki hlytt, ekki beinlinis kalt heldur... vettlingavedur. Mér leid allavega prydilega i systurprjonudu, hnaustykku lopavettlingunum minum. (Og ullarsokkarnir hafa lika tegar komid ad godum notum, takk Hildur.)
Fyrir rest komumst vid samt upp à Gaffaltind eftir ad hafa barist i gegnum skoglendi og kùaskit. Og tvilikt ùtsyni... gleymdi ég ad segja hvad vedrid var fallegt? Solin skein à nyhvita Pyreneatinda svo langt sem augad eygdi. Fyrir nedan okkur teygdu haustlitirnir sig ùt i hid oendanlega. Yndigt. Nesti og siesta og svo nidur. Tölfraedi dagsins: Gaffaltindur 1929m, haekkun ca 800m, göngutimi um 8 klst.

A sunnudaginn for ég à flakk med Sebastien, Alex, Aurelien og Stephan vini hans (ekki Stephan hàfjallahomma, tad var annar). Vid keyrdum yfir til Spànar, i gegnum Val d'Aran. Fyrsta skipti sem ég kem til Spànar, gaman ad tvi. Vid forum reyndar ekki nema ca 15 km inn til Spànar og bordudum tar, en samt, nù hef ég komid til Spànar!!! Minnti mig à fraegdarför fjölskyldunnar til Austurrikis hérna um àrid, tegar vid brugdum okkur yfir landamaerin og àtum Wienerschnitzel... En ég à nù örugglega eftir ad heimsaekja Spàn meira og betur seinna à àrinu. Svo forum vid aftur yfir til Frakklands og völdum okkur fjall til ad horfa à solarlagid af. A nidurleidinni i snöggdimmunni hraeddu stràkarnir okkur à ùlfasögum. Tad ku vist reyndar vera full àstaeda til ad ottast ùlfa à tessum slodum, nokkur fornarlömb à hverju àri... og teir gera helst àràs rétt eftir solarlag...

----
Ferdir à langtimaplaninu, tad er til og med jolafrii:

7.nov Toulouse - Lyon
11.nov Lyon - Kaupmannahöfn
17.nov Kaupmannahöfn - Toulouse
Heimsaeki Quentin i Lyon og fer à Muse-tonleika. Fyrst ég er à ferdinni hvort ed er, akkuru ekki ad skella sér til Kaupmannahafnar og heimsaekja Sigrùnu Osk. Allt of lengi sem ég hef verid à leidinni til hennar.

19. des Toulouse - Turku
6. jan Turku - Toulouse
Jolahald i Finnlandi, stay tuned. Tar mun Torhildur taka à moti mér og Agùstu af alkunnri gestrisni og vid saman munum bralla eitthvad skemmtilegt, allavega fara i saunu. Eg verd komin til Turku i bitid ad morgni 20. des, ad öllum likindum i fimbulkulda. Svo tek ég naeturferjuna til baka frà Turku ad kveldi 6. jan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home