Vegna óviðráðanlegra aðstæðna sáum við okkur ekki fært að vakna snemma í morgun og skunda til Helsinki.
En við sátum nú ekki auðum höndum, engu að síður, - við fórum og studdum strákana okkar!
Turkuliðið TPS mætti Tappara á heimasvelli í Elyséehöllinni og skemmst er frá að segja að tapparnir voru eins og belja á svelli og okkar lið vann leikinn 5-1.
Þetta var í fyrsta skipti sem nokkur okkar fer á íshokkíleik, þessa allt-um-faðmandi, næstum því þjóðaríþrótt þeirra Finnanna. Hér er hver maður með pökkinn til taks. Never leave home without it. Þeir mega ekki sjá frosinn drullupoll, þá draga þeir skautana upp úr rassvasanum.
Mikið vorum við líka glaðar að sjá strákana okkar jarða óvininn í síðasta leikþriðjungi. Eftir fyrstu mínúturnar hékk staðan í 2-1 í leiðinlega langan tíma. Í síðasta leikþriðjunginum datt einn skautarinn á nefið, okkar maður sko. - Ribbaldar þessir Tapparar. - Nú, um leið og strákarnir okkar sáu blóð síns manns á svellinu óx þeim ásmegin og þeir bættu við þremur mörkum á fimmtán mínútum.
TePSi tekken herva molti!!!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home