miðvikudagur, júní 08, 2005

"Og hverjir ætla fleiri í ferðina?"
"Bara við."
"Ó... ... bara stelpur?"

Já, bara stelpur. Ég og Villý fórum í fjallagelluferð á Vatnajökul með gönguskíði og allt til alls.
Leiðin lá upp í Esjufjöll... Bikiníveður á jöklinum og við nýttum okkur það heldur betur. Tanline eftir brjóstahaldarann! (Sorrí strákar, engar myndir af því. Þið hefðuð bara átt að koma með...)
Tjölduðum neðan við Vesturdal og fórum þar upp eftir morguninn eftir. Kíktum á fjall sem var ekki í aðstæðum, þar með fauk grundvöllurinn fyrir toppamyndir í bikiníinu, - en það verður efnt síðar!

Fórum niður aftur, tókum upp tjaldið og héldum að Mávabyggðum. Eins og hendi væri veifað skall á gjörningaþoka svo ekki sást handa skil. Ég missti alla trú á áttavitanum mínum og ætlaði ekki að trúa því fyrr en eftir ítarlegar ígrundanir með tvo áttavita, gps og kort að hann hefði rétt fyrir sér. Það er alveg ótrúlegt hvað mann getur rekið hratt af leið þegar ekkert sést nema hvítt í kringum mann. Ekki svo að skilja að við höfum verið villtar eða týndar, ég myndi alveg játa ef svo hefði verið. Það kom okkur bara í opna skjöldu hvað var erfitt að halda réttri stefnu.
Sváfum við Mávabyggðir og vöknuðum í sömu þokunni. Skíðuðum svo niður úr henni á heimleiðinni á föstudeginum. Myndir og kort koma kannski inn seinna ef ég nenni.

Villý hélt þá til frekari ævintýra á Kirkjubæjarklaustri og ég varð eftir í Skaftafelli fyrir öryggisnámskeið ÍFLM.

- Amma í Holti kom að máli við mig fyrir tveimur vikum síðan og bað mig að vara hana alltaf við þegar ég ætlaði að segja frá einhverju sem ég héldi að hún vildi ekki heyra.
Amma!
Afgangurinn af pistlinum inniheldur m.a. lýsingar á dauðadjúpum skriðjökulssprungum og björgunaraðgerðum þar úr, - bara að láta þig vita!

Árla morguns á laugardeginum vorum við keyrð út að Svínafellsjökli þar sem fjallaleiðsögumenn ganga 2,5 og 5klst túra með ferðamenn. Farið var yfir öryggisatriði og framkvæmd ferða allt frá tjaldstæðinu í Skaftafelli, allt sem gera þarf til að gestirnir komi alsælir heim, - og heilir á húfi. Því munið það að óslasaður maður gefur meira tips!!! (Þetta síðasta er algjörlega á ábyrgð ritanda og lýsir í engu skoðunum fyrirtækis þess sem hann hugsanlega vinnur fyrir né leiðbeinendanna á áðurnefndu námskeiði...)

Við vorum send oní sprungu til að æfa sprungubjörgun, þ.e. að ná manni upp úr sprungu.
Fyrsta skref: vona að viðkomandi sé ekki þegar dáinn í fallinu...
Annað skref: vona að hann sé ekki pikkfastur ofan í sprungunni...
(hvort tveggja eru mjög raunhæfir möguleikar)
Þriðja skref: ná fórnarlambinu upp úr sprungunni með öllum tiltækum ráðum. Öll tiltæk ráð eru m.a. að toga manninn upp á höndunum (ef það er það eina sem stendur upp úr sprungunni) og þar með mjög líklega toga hann úr báðum axlarliðum. En... það má alltaf kippa fólki aftur í liðinn, - það er hins vegar verra að laga öndunarstopp vegna súrefnisskorts ofan í sprungunni eða alvarlega ofkælingu vegna þess að fórnarlambið er innilokað í ísbúri.

Gera verður ráð fyrir möguleikanum að ef viðkomandi er pikkfastur ofan í sprungunni þurfi stórvirkar vinnuvélar til að ná honum út. Á Nýja-Sjálandi eru t.d. tiltækar hitabyssur þannig að ef einhver festist í sprungu er sprungan hreinlega brædd utan af honum.
Ekki það að ég vilji hræða nokkurn mann frá jöklaferðum, eins og þær eru nú skemmtilegar, en í guðanna bænum, viljiði fara varlega!

Eftir jökulinn var haldið heim í fyrirlestra: Hvannadalshnúkur, Fagmennska í fjallaleiðsögn og Hópstjórn. Verð að játa að augnlokin voru orðin soldið sigin kl hálfellefu þegar hafði verið stanslaus dagskrá síðan sjö um morguninn.

Beint í svefnpoka og vaknað kl sjö aftur á sunnudagsmorgninum. Út á Hnappavelli þar sem við æfðum klettaklifursbjörgun, - staðlað björgunarkerfi UIAGM alþjóðlega fjallaleiðsögumannasambandsins. Þvílík rulla, orðið erfitt að muna svona langan prósess kl fjögur þegar heilinn var hættur að virka vegna ofmagns upplýsinga og lágs blóðsykurs.
En allavega, góð helgi, lærði margt gagnlegt. Og alltaf gott að æfa hlutina líka, ekki bara heyra um þá eða lesa þá.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home