fimmtudagur, janúar 18, 2007

Sáluhjálp fréttamanna

Nú er svo komið að Vísismaðurinn er einn á fréttavaktinni á kvöldin, frá því að kvöldfréttafólkið fer heim. Stundum hef ég einhvern félagsskap af VefTV- eða Kompásfólki en ég sé ein um símann.

Í gegnum vikurnar og mánuðina hef ég munnhöggvist við kverúlanta, örlagafyllibyttur og óánægða dagskrárkaupendur sem náðu ekki í þjónustuverið.
En ég hef ekki áður þurft að hughreysta grátandi konu sem trúði mér fyrir leyndarmálum um Byrgið sem hvíldu svo á henni að hún gat ekki sofið en hafði hingað til ekki getað sagt neinum frá. Samtali okkar lauk eftir drjúga stund með því að ég vísaði henni á vinalínu Rauða krossins og fullvissaði hana um að sú þjónusta væri endurgjaldslaus, því ég hafði þrátt fyrir allt öðrum hnöppum að hneppa.

Ég hef verið spurð að því oftar en einu sinni hvað mér finnist um umfjöllun Kompáss um Byrgið fyrir jól. Nú eru þetta vinir mínir og samstarfsmenn sem setja þetta saman og ég er af þeim sökum ekki hlutlaus. En einmitt af því ég þekki fólkið þá veit ég að það hafði mun meiri gögn en voru birt í þættinum fyrir jól. Það var ekki einasti vafi um það hvort þátturinn væri á rökum reistur.
Tímasetningin hefur verið gagnrýnd. Af hverju að gera þetta fyrir jól? Þessu fylgir ómælt tilfinningarót fyrir marga. Fjölskyldan hans hefur varla átt áhyggjulaus jól. En Guðmundur í Byrginu gróf þá gröf sjálfur, - og heldur áfram að grafa. Það er ekki við Kompás að sakast, við skulum ekki gleyma hver það er sem er vondi kallinn hérna. Og gleymum heldur ekki að umfjöllunin létti fargi af ærið mörgum. Það finnst mér góð jólagjöf.

Ég sannfærðist ennfremur um þetta í kvöld þegar ég talaði við þessa konu. Það er sárt þegar svona lagað kemur upp á yfirborðið en það er nauðsynlegt. Ég hef talað við marga á þessum síðkvöldsvöktum mínum sem fagna þessari umfjöllun. Enn fleiri eru æfareiðir yfir því að þetta skuli ekki hafa verið dregið fram í dagsljósið fyrr. Nú fær maður að heyra hluti eins og: "það vissu allir af þessu í AA en enginn gerði neitt" og "ég sagði fréttamanni frá þessu fyrir fjórum árum síðan. Fyrir FJÓRUM árum!" Nokkrir til viðbótar hafa gengið út í öfgar með samsæriskenningum sínum en nú hugsar maður, eftir allt saman, hvað er svo sem ótrúlegt? Ég hefði líklega ekki trúað einhverjum fyrir nokkrum mánuðum sem hringdi inn og leiddi mig í allan sannleikann um Byrgið.

Það að fíklar hafi lent aftur á götunni er ekki heldur Kompásumfjöllun að kenna. Það er skandall að hafi verið hægt að reka Byrgið á þennan hátt og það er skandall að ríkið skuli halda að sér höndum núna í stað þess að bregðast við vanda þessa fólks. Byrgið náði árangri en það skemmdi líka út frá sér. Tilgangurinn helgar ekki meðalið. Það geta allir þeir sagt ykkur sem hafa setið heima og grátið í koddann af því þeir hafa ekki öxl til að gráta á. Af því þeir geta ekki sagt nokkrum manni frá því sem gerðist.
Ég þurrkaði nokkur tár af öxlinni í kvöld og ég varð glöð að þau hefðu fallið en lægju ekki eins og mara á konunni lengur. Nú er þetta allavega komið upp á yfirborðið.

Að því sögðu hvet ég alla til að horfa á Kompás á sunnudagskvöldið, strax eftir fréttir og svo á netinu.

sunnudagur, janúar 07, 2007

Karma schmarma

Þýðir það slæmt karma að byrja árið á að segja upp vinnunni og brjóta hjarta?
Vona ekki, bara að spá.

Í dag er afmælisdagurinn hans pabba, hann hefði orðið 49 ára gamall. Á erfitt með að ímynda mér hvernig hann væri í dag. 15 ár í haust síðan hann dó, of stór eyða til að reyna að sjá fyrir sér hvernig allt væri.

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðileg jól og gæfuríkt ár

Það er helst tíðinda á nýju ári að ég er að skipta um vinnu. Nú ætla ég að hætta að skrifa á netið og fara að skrifa fyrir nýtt blað undir gömlu nafni.

Ég er að fara að vinna á DV, en eins og kemur í ljós á föstudag þegar nýja DV kemur út undir ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar með gjörbreyttri ritstjórn, þá verður horfið frá ritstjórnarstefnu sem DV hefur orðið frægt að endemum fyrir á liðnum árum.

Ég væri ekki að fara út í þetta ef mér fyndist ekki vit í því.

Svo bið ég landsmenn til sjávar og sveita vel að lifa á nýju ári.
Takk og bless.