Sjaldan hefur mér fundist jafngaman, í seinni tíð, að hjóla heim af bókasafninu drekkhlaðin bókum. Í vetur var ég umkringd bókum sem báru titla eins og Comparative public administration, Stjórnmálaheimspeki, L'histoire de la France svo nokkrar séu nefndar. Þær safna ryki þessa dagana eða liggja á kafi undir öðrum bókum.
"En iii, hver fer á bókasafnið í fríinu sínu?"
Vits er þörf þeim sem víða ratar og þess vegna eru núna mannhæðarháir bókastaflar allt í kringum rúmið mitt. Ólíkt bókunum sem ég las í vetur tengjast þessar ferðalögum og ferðasögum hér á landi og víðar. Milli þess sem ég glöggva mig á jarðfræði og náttúrufari læt ég mig dreyma um ferðalög í Suðaustur-Asíu eða skútusiglingar milli Kyrrahafseyja. Næst á listanum er Suður-Ameríka; Chile og Argentína.