Mér finnst svo gaman að vera hérna niðri á höfn og vinna með þessum gömlu jöxlum sem hafa siglt út um allan heim, í heimskautsgaddi á Halanum eða hjá halanegrum í Malaví.
Og snemma beygist krókurinn; ungdómurinn íslenski hangir niðri á höfn og dorgar í olíubrákinni.
Ég spjallaði við tvo upprennandi aflakónga í hádeginu og spurði hvort þeir hefðu veitt eitthvað.
"Já... fjóra fiska í gær en ekkert núna af því bandið flæktist," sagði strákurinn þar sem hann sat einbeittur við að losa stóra og ljóta flækju úr girninu.
"Og hvernig fisk fenguð þið?"
"Bara svona... fiska... Þeir þarna [bentu á þrjá stráka niðri á flotbryggjunni], þeir eru alltaf að veiða lúðu en við fáum bara venjulega fiska."
Það er aldeilis, heilagfiski úr höfninni! En hvað veit maður sosem, það var nú hnúfubakur hérna inni í höfninni um daginn. Hvar voru strákarnir með stöngina þá?
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home