Fréttir af Herdísi
Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég komin í nýja vinnu. Var ráðin með nokkurra daga fyrirvara í fulla vinnu sem fréttakona á NFS, Nýju FréttaStofuna. Fyrir þá sem ekki enn hafa séð þessa stöð, þá getiði farið inn á www.visir.is og smellt á vefTV, þá getiði horft á netinu.
Nú eru fjórar vaktir búnar og ég búin að tala við Garðar Cortes, Björgólf Guðmundsson, fasteignasala nokkurn sem selur Íslendingum hús á Spáni og forstöðumann skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, svo nokkur dæmi séu nefnd. Fylgist með NFS, þá kannski líður ekki á löngu áður en þið heyrið nafnið mitt nefnt.
Ágústa skoraði á mig að svara nokkrum spurningum. Ég stenst ekki mátið, alltaf gaman af naflaskoðun.
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- ferðast til allra heimsálfa (já, líka Suðurskautslandsins)
- gefa út skáldsögu
- klifra 5.10 í klettum, fjórðu gráðu ísfoss, taka meiri köfunarréttindi, læra á skíði og straumvatnskajak og rafta niður fimmtu gráðu flúðir
- lesa allar Íslendingasögurnar
- búa á sama staðnum samfleytt í lengur en þrjú ár
- læra fimm tungumál til viðbótar (hið minnsta)
- vinna á stríðshrjáðu svæði eða við þróunaraðstoð
Sjö hlutir sem ég sé:
- fullt af bókum
- hnattlíkan
- klifurskór
- Íslandskort
- föt á gólfinu
- rúmið mitt
- og klukkan sem segir mér að það sé kominn háttatími
Sjö hlutir sem ég get gert:
- Sofið í tjaldi í heilt sumar
- þolað rigningu af æðruleysi í heilli tveggja vikna ferð
- stjórnað hundasleða skammlaust (ekki samt með grænlenska laginu)
- eldað kjötsúpu
- sagt ferðasögur
- gleymt öllu sem mér er sagt
- eytt heilu kvöldi í tölvukapal eða álíka tímaþjóf
Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
- Klárað ritgerðir og önnur skilaverkefni fyrr en á síðustu stundu
- gert tvennt í einu
- lesið grænlensku, kínversku, arabísku, swahili eða hindi (en það skal ég geta áður en ég dey)
- bakkað í stæði svo vel sé
- sofið lengur en tólf tíma samfleytt
- stokkið á snjóbretti
- átt pennavini
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Gáfur
- skopskyn
- sjálfsöryggi
- glaðværð
- ferðaþrá
- falleg augu
- brosmildi
Sjö frægir sem heilla mig:
- Vigdís Finnbogadóttir
- J.R.R.Tolkien
- captain Cook
- Paulo Coelho
- Wangari Maathai
- Johny Depp
- Mahatma Gandhi
Sjö orð/setningar sem ég nota oft:
- Hæ sæta
- Það reddast samt einhvern veginn.
- Það verður bara að koma í ljós, ég veit ekkert hvar ég verð í framtíðinni. (Sem reyndar breytist kannski eitthvað núna)
- Je m'appelle Herdís, c'est comme R5, mais deux fois.
- Æ, ég steingleymdi því, fyrirgefðu.
- Afsakið að ég kem of seint.
- Búin að döbba og þekja, á bara eftir að setja inn söbbið, er búið að mosa fréttina?
Sjö lög sem kveikja í mér:
- Build me up buttercup: The Foundations
- I can't help myself (Sugarpie Honeybunch): The Four Tops
- Heatwave: Martha & the Vandellas
- Suspicious minds: Elvis Presley
- Modern Love: David Bowie
- Concrete schoolyard: Jurassic 5
- Good vibrations: Beach Boys