miðvikudagur, mars 29, 2006

Lifibrauðið

Hef ekki margt annað að skrifa um en vinnuna, vakin og sofin vinn ég, með hljóðnemann á lofti í draumi sem vöku.
Vann í 14 tíma í gær út af forföllum. Það er nú reyndar lengsti vinnudagurinn hingað til en það er sama, maður kemur yfirleitt heim eins og útspýtt hundskinn. Yfirleitt er maður hálftíma, klukkutíma fram yfir vaktina, að klára að klippa, að setja frétt inn á vísi, koma seint inn úr tökum og eiga eftir að fullvinna fréttina... alltaf eitthvað, aldrei minna en níu tímar.

Bætti nú kannski ekki úr skák að fara í ísklifur á sunnudaginn og svo síðkvöldsbíó með Hildi systur. Hún er nú farin í starfsþjálfun að Árbæ í Reykhólasveit, hestabúgarði með meiru og er svo að fara að vinna á hestaleigu í sumar. Það verður sem sagt Hildur sem þið rekist á á hálendinu í sumar í minn stað. Ætla nú samt að reyna að komast í tvær ferðir í sumar, annars visna ég upp.

Nú er verið að breyta aðeins til á NFS, fimmfréttirnar verða stærri pakki, með íþróttum, erlendum fréttaskýringum, markaðsfréttum og menningarfréttum. Skemmst frá því að segja að það verða líklega tveir FSu-ingar sem sjá um menningarfréttirnar öðrum fremur, Brynja Dögg Friðriksdóttir verður aðal en ég fæ kannski eitthvað að leysa hana af. Allavega höfum við hingað til verið áhugasamastar um þessar "mannlegu" fréttir. Þetta byrjar á mánudaginn, hlakka til að sjá hvernig gengur.

miðvikudagur, mars 08, 2006

Fjallamennska og fréttamennska

Ég er búin að nota helgarnar vel undanfarið. Þetta er algjör lúxus fyrir mig sem ekki hef fengið að vera í helgarfríi, ekki svo árum, jafnvel áratugum skiptir.
Þannig að það sem af er vetri hef ég verið uppi um fjöll og firnindi, hangið í ís og reynt að standa á skíðum.

Vinnan mín er afskaplega skemmtileg. Ég fæ að tala við svo marga sem ég hefði ekki annars hitt og læri svo margt um svo margt.
Svo er svo skemmtilegt fólk sem ég er að vinna með, alltaf gaman í vinnunni og ekki lognmollan, sem hentar mér prýðilega.

Fór á fagnámskeið í fjallamennsku um helgina. Reyndar fimm daga námskeið, þannig að helgin byrjaði á miðvikudegi. Frábært að stinga af og eyða fjórum heilum dögum í klifur, skíði og línuvinnulærdóm. Góðar aðstæður fyrir norðan: bergtryggingar og þurrklifur við Munkaþverá á fimmtudeginum, ísklifur inni í Skíðadal á föstudeginum, skíði, snjóflóðapælingar og skíðabörur í Hlíðarfjalli á laugardeginum. Sunnudagurinn fór í fyrirlestra, myndasýningar og svo félagabjörgun og sprungubjörgun í klifurveggnum í Súluhúsinu.
Stórskemmtileg helgi.