miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Nýtt útlit

Ný föt? Sama röddin...

Ekki láta útlitið blekkja ykkur, mér fannst bara komið nóg af nærbuxnagulum ljósálfi.
Ég er að vinna í þessu. Þetta er ekki alveg endanlegt.

Annað í fréttum er að vegabréfsáritun til Tansaníu er í höfn. Þvert á allar viðvaranir og varnagla, þá tók það ekki nema tíu mínútur að stimpla í vegabréfið og rukka mig um 400DKK. Með því er allt komið. Allt.
Nú er ég tilbúin.
Nei, reyndar, ég næ ekki að kaupa linsur hér í Kaupmannahöfn. Þar sem ég hef reynt það er mér sagt að lögin banni lausasölu á linsum. Þú verður að vera í áskrift. Ekki að ræða það að lauma til mín einu pari á okurverði á svörtu... sem þýðir líklega bara það að ég verði að fara fram yfir á mánaðarlinsunum - það verður nú ekki í fyrsta skipti.
Þannig að ég keypti mér gleraugu. Þau verða nú reyndar ekki tilbúin fyrr en eftir amk tvær vikur, þannig að ég sæki þau bara eftir Afríku. En afrek dagsins er líklega að fara í sjónskoðun á dönsku.
Fyrir þá sem eru ekki kunnugir í þessum heimi... þá er það meiri þolraun en virðist við fyrstu sýn að láta mæla sjónina. Endalausar spurningar um hvort þú sérð betur svona eða svona eða kannski svona - og þú sérð engan mun og heldur helst að þetta sé tricky krossaspurning þar sem enginn svarmöguleikanna sé réttur. Þú biður um að fá að sjá valmöguleikana aftur og reynir að gera upp hug þinn. Svo hikarðu við að biðja lækninn um að sýna þér enn einu sinni af því að það voru svo margir að bíða á biðstofunni og þér finnst þú vera að sóa dýrmætum tíma læknisins. Þetta er eins og Djúpa laugin, maður endar með að skjóta á nr. tvö án þess að vita alveg hvort að það sé besti kosturinn, rétta svarið. Og þá bítur læknirinn höfuðið af skömminni og spyr hvort maður sé aaaalveg viss...
Þannig að eftir að hafa staðist þetta lokapróf á dönsku, þá tel ég mig færa í flestan sjó, orðin sjóuð og ekki bara slarkfær í dönskunni. Bara að monta mig smá sko.

3 Comments:

At 1:30 e.h., Blogger Þórhildur Hagalín said...

Glaesilegt lúkk! Hlakka til ad sjá innan skamms :)

 
At 1:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hmm ekki alveg viss um thetta utlit, likadi svo harla vel vid thad gamla, en jaeja thett venst vonandi!

 
At 12:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Dear pixy,

I perused your post (this post) with much interest as I was looking for ways to buy and sell road construction of pa. Unfortunately your article was not exactly what I was looking for
road construction of pa. But luckily there is a site I have found that allows you to buy and sell anything like road construction of pa on interest free credit and you can pay for your road construction of pa whenever you want. Here's the link one more time: road construction of pa.

 

Skrifa ummæli

<< Home