Kosningar, jöklabjarganir og hvalsprengjur
Auðvitað gat ég ekki haldið mig frá kosningasjónvarpinu. Var mætt klukkan sex á sunnudagsmorgninum, eftir tveggja tíma svefn kom fjórtán tíma vakt. En ég fékk samt skemmtilegustu verkefnin. Átti þrjár skottfréttir í kvöldfréttatímanum... Íkonar í Hallgrímskirkju (mjög montin af myndatökunni...), tónleikar í óperunni og svo skemmtilegustu móment kosningavökunnar (mjög montin af klippivinnunni, á hana alveg sjálf).
Svo eftir fjórtán tíma vaktina var borinn bjór í fólkið... Þarf ekki að tvíyrða um það að það þurfti ekki marga á mann þegar flestir voru vansvefta og að niðurlotum komnir. Enda voru flestir komnir heim áður en langt um leið.
Svo er búið að ganga á með meirihlutamyndanafréttum, yfirstrikunum og svo framvegis. Og svo hvalhræi á reki sem var sprengt í loft upp til að sökkva því rétt utan við Gróttu með 20 kílóum af sprengiefni (skoðiði hádegisfréttir þriðjudags 30.maí.) Og svo snjóflóð á Hvannadalshnjúki og umfangsmiklum björgunaraðgerðum þeim fylgjandi. Að sjálfsögðu fór ég beint í fréttaflutning af því þegar ég mætti á vakt kl tvö og það tók allan daginn.
Svo var hringt í mig tíu mínútum fyrir síðasta fréttatíma kvöldsins og þá fékk ég að heyra af því að fallhlífastökkvararnir sem öll þjóðin hampar nú sem hetjum, þeir lentu langt frá slysstað og komu aldrei nálægt björguninni sjálfri. Það var eiginlega bara þyrluáhöfnin sem reddaði þessu upp á eigin spýtur... Nú er spurningin: á maður að skemma hetjuímynd fallhlífasveitar Flugbjörgunarsveitarinnar sem loksins fengu uppreisn æru, eftir að hafa æft sig í þrjá áratugi en aldrei fengið að stökkva á slysstað? Er sagan ekki bara ágæt svona? :)
Og já, svo eru víst einhverjar fréttir af mér... Ég er búin að kaupa mér bíl! Fyrsta skipti á minni lífsfæddri ævi sem ég eignast farartæki sem ekki er fótstigið. Hann fær nú samt að standa á Njálsgötunni eða Bergþórugötunni meðan ég er í bænum, hann er bara til landsbyggðarflakks. Samt tímamót. Ekki var hún nú dýr, drossían. Ég hefði ekki getað keypt mikið í nýja Rollsinum sem var verið að sýna í Ásmundarsafni fyrir 85 þúsundkallinn, hann átti víst að kosta eitthvað um 70 milljónir.
Er að reyna að fá frí frá fréttunum til að komast í eina tíu daga Grænlandsferð í byrjun júlí. Ef ég næ einni Grænlandsferð og einni klassískri yfirferð um Ísland, þá er ég sátt. Þá get ég þraukað sumarið á illa loftræstri fréttastofu.
Svo er ég komin með blaðamannapassa á Hróarskeldu og á Reykjavík Tropic tónlistarhátíðina sem er um helgina og líklega á Belle and Sebastian tónleika sem verða í lok júlí. Þannig að það stefnir allt í að sumarið geti bara orðið mjög skemmtilegt. Það á bara eftir að ganga frá strandpartíinu!