föstudagur, júní 30, 2006

Sol i fesid og ullabjakk i auga

Gudi se lof fyrir bladamannapassa a tonlistarhatidir. Svo fegin ad eiga annan valkost en ad standa i fimm stundarfjordunga i rod til thess eins ad setjast a yfirfullan kamar. Fyrir utan adra kosti.

Missti alveg af tonleikunum i gaer, kom svo seint med fluginu. Guns n roses voru reyndar enn ad spila thegar eg kom, med flugeldasyningum og ollu. Aetladi rett ad skila af mer bakpokanum og hlaupa aftur upp a svaedi. Thad var adur en eg gerdi mer grein fyrir vegalengdunum a svaedinu og thvi ad tjoldin okkar eru sjo sjomilur sudaustur af hatidasvaedinu. Thar ad auki var dimmt og leidin var ekki audrotud.

I stadinn fekk eg samt knus fra Rut+ og Stebba og svo fekk eg bjor og tha bradnadi svekkelsid. Svo sogdu thau ad kvoldid hefdi ekki stadid undir vaentingum hvort ed er. Hefdi samt viljad sja Deus og Sigur ros.

Stalst med myndavel inn a hatidarsvaedid i dag, vorum ekki med leyfi fyrir thvi... Vorum nefnilega ekki buin ad fa leyfi fyrir ad mynda neina serstaka tonleika, eg fattadi samt ekki ad thad thyddi i leidinni ad vid gaetum ekkert komist inn a hatidasvaedid. Thannig ad eg bara smygladi henni inn... Er nu komin med ruman halftima af efni af hatidasvaedinu, medal annars af finum tonleikum Eivarar Palsdottur i chillout tjaldinu i dag.

Allavega, dagskra kvoldsins er byrjud. Morrissey, Dylan, Death cab for cutie og fleira gott folk bida eftir ad komast a svidid.

Eg aetla ad skreppa og na i augndropana mina sem bida i apotekinu. Fekk sykingu i augad sem var bara ekkert ad lagast og i morgun vaknadi eg med augad fullt af grut. Laeknirinn brosti i kampinn thegar eg lysti astandinu med leikhljodum af thvi eg kann ekki ad segja groftur a donsku. Ekkert alvarlegt samt, liklega bara einhver sminkmengun sem lidur hja thegar droparnir fara ad virka.

miðvikudagur, júní 28, 2006

Farin...

Kem aftur 11.júlí. Mæti þann tólfta í vinnuna í Skaftahlíðinni og les kvöldfréttir, meðal annarra verka. Jamm, fæ að spreyta mig sem afleysingaankor.

Hvar annars staðar en á litla Íslandi er leiðin á toppinn svona stutt? Það að geta dottið fyrirvaralaust og fyrir tilviljun inn í fréttamannsstarf í sjónvarpi og þar að auki tæpu hálfu ári seinna verið að lesa aðalfréttatíma stöðvarinnar er... mjög sérstakt á heimsvísu.
For kræsts seik, fyrir fimm mánuðum var ég atvinnulaus flakkari og bóhem!

En þangað til ég mæti aftur í dragtinni þann 12.júlí fæ ég að vera flakkarinn og fjallaleiðsögumaðurinn Herdís í smástund. Fer með Englendinga í 8 daga ferð á Grænlandi: Kulusuk-Kuumiut-Sermiligaq-Kulusuk. Styttri útgáfan af ferð sem ég fór tvisvar í fyrra.

Þið hafið heyrt sögur eins og þegar við misstum næstum af vaðinu í jökulánni vegna sjávarfalla en ég herjaði hópnum útí og yfir (hef aldrei fengið jafnmikið ríspekt frá nokkrum hóp, - af því það heppnaðist...)
Svo er sagan af því þegar ein konan hrapaði í snarbrattri urð og ég bjó mig hreinlega undir hryggáverka eða hækkaðan innankúpuþrýsting og þyrlubjörgun úr óbyggðum Grænlands (svo slapp hún með marbletti, ótrúlegt).
Og svo þegar fjaraði undan bátnum okkar meðan við vorum að hlaða farangrinum í hann til að komast heim til Kulusuk. Frysti næstum á mér tærnar þar sem ég stóð á steini í jökulfirðinum og reyndi að ýta margra tonna bátnum af steininum sem hann sat á. Hafðist þó að lokum. Fyrir utan að okkur langaði til baka í siðmenninguna, þá var að skella á Piteraq (sérgrænlenskir hamfarastormar, varð svo reyndar ekki jafnhvasst og við bjuggumst við, - en samt...)
Þetta er sem sagt ferðin sem ég er að fara í aftur, vona helst að ég lumi ekki á æsilegri ferðasögum en þetta þegar ég kem heim næst, er búin með kvótann.

Hróarskelda - spennan magnast!

Ekki nóg með að ég sé að fara á Hróarskeldu...
Ekki nóg með að ég og fleira gott fólk sé með blaðamannapassa á Hróarskeldu...
Ekki nóg með að þar verði fullt af skemmtilegum hljómsveitum...
heldur er útlitið svona:

Udsigten for Roskilde Festival 2006
Torsdag
Tørt og solrigt med temperaturer omkring 22 grader.

Fredag
Tørt og solrigt med temperaturer op omkring 23 grader.

Lørdag
Tørt og solrigt med temperaturer op omkring 25 grader.

Søndag
Tørt og solrigt med temperaturer op omkring 25 grader.

Hmmm... verð að muna að kaupa meiri sólarvörn í fríhöfninni...

mánudagur, júní 26, 2006

Fór á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka á laugardagskvöldið. Margt um manninn og gaman að sjá allt þetta fólk sem maður sér ekki nema einu sinni tvisvar á ári.
Reyndar virtust allir hafa séð mig nýlega, enda reglulega inni í stofu hjá landanum. Fleiri en einn og fleiri en tveir sögðust vera svo stoltir af að sjá mig á skjánum og sögðust oft hafa sagt: þessi er frá Eyrarbakka!
Ég var ekkert að leiðrétta það, enda flókið að útskýra fyrir fólki að ég geti ekki svarað spurningunni "hvaðan ertu?" nema með því að segja að ég sé flakkari. Til að rifja upp söguna, þá var ég fjórtán ára þegar ég flutti á Eyrarbakka og hafði þá næstum átt eitt lögheimili fyrir hvert ár. Og ekki stoppaði ég sjálf mjög lengi á Eyrarbakka, jafnvel þó að fjölskyldan og lögheimilið séu þar enn, tólf árum seinna. Hins vegar eru bestu vinir mínir Eyrbekkingar og þannig heldur þorpið í mig á vissan hátt.
En Jónsmessuhátíðin er hvorki staður né stund til þess að afneita staðhæfingum um að maður sé Eyrbekkingur, jafnvel þó þær séu á misskilningi byggðar.

Skemmtilegast þótti mér að hitta feðginin Halldór Val og Ingu yngri sem vakna stundum á morgnana og horfa á sjöfréttirnar á NFS. Inga leggur við hlustir þegar hún heyrir fréttastefið og brosir þegar hún sér mig á skjánum. Hún kannski skilur ekki ennþá allt sem fram fer, enda þótt hún sé mannaleg og skýr miðað við átta mánaða gamalt barn. Halldór sagði hins vegar að ég ætti langt í land með að ná þeim hughrifum sem Sigmundur Ernir vekur hjá barninu; hún tekst öll á loft þegar hann birtist á skjánum, skríkir og hlær og slær sér á lær.
- Þá hef ég eitthvað til að stefna að!

fimmtudagur, júní 22, 2006

Allir á Snæfjallaströnd um verslunarmannahelgina

Ég ætla að fara á Vestfirði yfir verslunarmannahelgina. Ferðaplanið er ekki alveg ákveðið en mikið langar mig að fara í gönguferð á eyðistaðinn Snæfjallaströnd, - Hornstrandir mínus hópferðir. Langar einhvern með?

mánudagur, júní 19, 2006

Mr. Skallagrímsson og skallakúla á enni

Fór með afa og Hildi að sjá einleikinn Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Benedikt Erlingsson er snillingur. Egils saga á máli nútíma Íslendinga en samt ekki. Nægilega fornt til að maður gleymi ekki að þetta eru landnámsmenn en ekki Hollywoodapjátrungar.

Talandi um Hollywood, - varð fyrir því að sjá einn þátt af Beverly Hills á Skjá einum. 90210 frá byrjendaárunum - jahérnahér. Eins og mér og öðrum fannst þetta miklir gæðaþættir fyrr á árum...

Annars var jolly gaman um helgina. Svo gaman að ég er enn með hassberur aftan á hálsinum og kúlu á enninu eftir að hafa skallað Hildi Edwald á ellefunni í hamaganginum. Ég slapp þó við að fá marblett í ofanálag. Gott rokk allavega, Matti við stjórnvölinn.

Svo er hún Ágústa mín komin heim, heimt frá Bristol. Nú fer hún að grafa upp skóladrengi í Skálholti, allavega krítarpípurnar sem þeir laumuðust með bak við Skólavörðu í frímínútum. Laumureykingar hafa lengi verið til...
Hlakka óendanlega mikið til þegar Kristín og Þórhildur afmælisbarn verða líka komnar heim, - og Ólöf úr flakkinu. Þá getum við loksins haldið alminlegt prattí. Svo veðja ég á að Rut og Stebbi birtist óvænt á Íslandi, - ákaflega gaman þá.

En svona í tilefni dagsins: til hamingju Þórhildur óskabarn og til hamingju íslenskar konur með kosningaréttinn fyrir 91 ári og allir í bleikt í dag! Fréttalesararnir á NFS verða flestir í bleiku, veðurkonan í bleiku, ég verð í fyrramálið í bleiku... sem minnir mig á að ég þarf að vakna eftir allt of stuttan tíma... farin að sofa, góða nótt.

fimmtudagur, júní 15, 2006

Hver er laus í smá ferðalag í september? Hvað með alla þessa leiðsögumenn sem verða loks lausir eftir vertíðina, langar einhvern að koma með mér niður til Líbanons, Sýrlands og Jórdaníu?

Þar er hægt að máta kefíur og borða falafel, fljóta í Dauðahafinu og kafa í Rauðahafinu, geysast á úlföldum um eyðimörkina og leita að heilögum graal í steinborginni Petru þar sem Indiana Jones týndi honum (eða hvernig endaði myndin annars? missti hann ekki bikarinn í sprungu?)

Upp úr miðjum september er úrvalstími til að heimsækja þennan heimshluta, rétt eftir að flestir túristarnir eru búnir að steikja á sér tærnar í grillsólinni yfir hásumarið og hitastigið rétt að verða þolanlegt fyrir hvítnefja Íslendinga.

Og engar áhyggjur, ég hef sagt nóg af fréttum af bílsprengjum og öðrum ofbeldisverkum til að vita nokkurn veginn hvaða staði á að forðast í þeim efnum, og þeir eru flestir í öðrum löndum en ofangreindum, þó þeir séu kannski ekki langt undan. Svo hef ég heldur ekki áhuga á að ana út í opinn dauðann, frekar en milljónir annarra ferðamanna sem kjósa að heimsækja þessi lönd á hverju ári og koma heim heilu og höldnu.

mánudagur, júní 12, 2006

Skyldur björgunarsveitarfólks gagnvart erlendum ferðalöngum

Gekk yfir Fimmvörðuháls um helgina, í fyrsta skipti. Enda tími til kominn, skömm að því að kalla sig fjallaleiðsögumann og hafa ekki gengið eina af fjölförnustu gönguleiðum á Íslandi.

Uppi á hálsinum, mitt á milli jökla, gengum við fram á erlendan ferðalang sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hafði flækst þangað upp fyrir einhverja rælni og vissi ekkert hvar hann var. Þetta var stórt fiðrildi sem hafði borist fyrir suðaustanáttinni frá Evrópu og var nú lent þarna uppi á milli jökla, greyið...
Minnug þess sem Einar Ísfeld sagði um flugur uppi á jöklum, (það er hjátrúin hans að bjarga flugum og til að fá gott fjallakarma) setti ég það á öxlina á mér til að vita hvort það myndi hjarna við og taka til vængjanna. Þá skreið það bara undir hettuna og leitaði skjóls, hlýju og myrkurs þar.
Nú, ekki gat ég skilið grey útlendinginn eftir á milli jöklanna þannig að ég lét hann óáreittan undir hettunni og hann hossaðist á bakinu á mér niður Illakamb, um þvera Morrisheiði, yfir Kattahryggi og alla leið niður í Goðaland. Þar skildi ég fiðrildið eftir á trjágrein rétt áður en við komum að Básum og svo veit ég ekki hvað varð um það síðan. Líklega hefur það samt verið aðframkomið og bara dáið þar sem það sat á greininni, ekki fundið matinn sem það var vant að borða og ekki kunnað við hellirignignuna á sunnudeginum.

þriðjudagur, júní 06, 2006

...og svo sagði Halldór af sér...

Ansi daufur dagur en hressilegt kvöld á Fréttastofunni. Ég mætti klukkan níu í morgun og hafði fátt eitt að gera í allan dag, annað en að garfast áfram í kvótamálum og fiskveiðistjórnun. Get nú slegið um mig með orðum eins og aflamark og veiðistofn, sem getur alltaf komið sér vel í góðu partýi.
Hlakka ekki til sumarsins ef þetta er forsmekkurinn að gúrkutíðinni þegar allir eru komnir í sumarfrí.

Svo var ég við það að fara heim þegar kallið kom. Við Kata skrifta vorum einar eftir á hæðinni þegar boðin bárust um blaðamannafundinn hans Halldórs á Þingvöllum klukkan níu. Þá gekk nú ekki að fara heim fyrr en það mál var til lykta leitt. Gekk síðust út úr húsinu klukkan hálfeitt.

En það verður mjög spennandi að fylgjast með hvernig málin þróast með Framsóknarflokkinn á næstu dögum. Guðni er í massífri fýlu, horfið á áttafréttirnar í fyrramálið og sjáið svipinn á honum þegar hann labbar í burtu á Þingvöllum. Og lesið svo yfirlýsinguna hans. Hann hefur líklega verið kominn með vilyrði fyrir formannssætinu upp í hendurnar og þá væntanlega utanríkisráðherrastólnum. Sjáiði hann ekki fyrir ykkur í sendiherraboðunum?
Það eru ekki öll kurl komin til grafar þó það sé komið í ljós hvað Halldór ætlar að gera...